Gneistinn

Dagbók og handahófskennt þvaður
Föstudagur, 5. október 2007 klukkan 19:12

Varúlfaleikurinn (fyrir Telmu)

Sko, leikurinn Werewolf fór cirka svona fram. Við vorum 16 í hring. Einn var sögumaður/stjórnandi og hann úthlutar hlutverkum. Enginn annar vissi hver hefði hvaða hlutverk nema að varúlfarnir sáu hver aðra. Sögumaðurinn getur líka spunnið sögu í kringum allt sem er að gerast.

Í leiknum skiptast á tvær umferðir, dagur og nótt. Við vorum fjögur sem vorum valin sem Varúlfar. Á nóttunni opnuðum við augun á meðan hin höfðu þau lokuð og bentum á einhvern sem við vildum drepa.

Á daginn fengu allir að taka þátt í ásökunum þar sem reynt var að koma upp um varúlfinn. Einn var valinn og drepinn.

Það voru nokkur önnur hlutverk sem eru bara þegar um er að ræða stóran hóp.
Einn norn gat drepið eða læknað einhvern á nóttunni. Verndarengill gat valið einn til að vernda. “Sjáandi” gat fengið upplýsingar um hlutverk einhvers. Síðan var veiðimaður sem gat, þegar hann var að deyja, valið um að drepa einhvern annan. Aðrir voru bara óbreyttir þorpsbúar.

Leikurinn er síðan keppni milli varúlfa og þorpsbúa. Ef varúlfarnir eru einu sem lifa af þá vinna þeir. Ef allir varúlfarnir deyja þá vinna þorpsbúarnir.

Hlutföll milli þorpsbúa og varúlfa eru síðan breytileg eftir fjölda. Ég er ekki alveg með það á hreinu.

Spyrjið ef eitthvað er óskýrt.

Föstudagur, 5. október 2007 klukkan 12:41

Spilandi, skrifandi og vinstramegin

Á morgun fer ég að keyra vinstra megin. Ég kvíði því dálítið.

Í gær afrekaði ég lítið. Ég fór samt á spilakvöldið eins og í síðustu viku. Spilaði LotR Risk með reglum sem voru næstum jafn undarlegar og þær sem Freyr og Auður voru með. Reyndar byrjuðum við á því að taka leik sem kallast Werewolf en er víst upprunalega kallaður Mafia. Hann var frekar skemmtilegur.

Í dag er grein eftir mig í Blaðinu sem var skrifuð fyrir einni og hálfri viku. Kemur myndin jafn illa út og mér finnst hún gera í netútgáfunni?