Á leiðinni heim úr Centra með bátinn minn (eða roll eins og þeir kalla þetta) þá fannst mér þessi brú hérna nokkuð falleg. Myndin er tekin af Brian Boru brúnni en ég veit ekki hvað myndefnið heitir.

Á leiðinni heim úr Centra með bátinn minn (eða roll eins og þeir kalla þetta) þá fannst mér þessi brú hérna nokkuð falleg. Myndin er tekin af Brian Boru brúnni en ég veit ekki hvað myndefnið heitir.

Ég held að frá og með gærdeginum sé ég að setja met í útlandavist. Á morgun verða síðan liðnar þrjár vikur síðan að ég kom til Cork.
Skrýtnast er eiginlega hve lítið skrýtið þetta er. Ég bara aðlaga mig aðstæðum og lifi lífinu. Ég kynnist fólki eins og ekkert sé. Ég keyri og skoða Írland með skemmtilegu fólki og leyfi mér að njóta lífsins.
Það er líka þannig að allir erlendu stúdentarnir eru tilbúnir til að kynnast fólki og það gerir allt auðveldara. Allir eru opnir.
En ég var að kaupa miða aftur til Cork. Ég mun ná sex dögum á Íslandi núna í byrjun nóvember. Mesti krafturinn fer augljóslega í allt tengt ritgerðarvinnu en ég ætti að geta afrekað eitthvað meira. Held samt að ég muni leggja mesta áherslu á rólegheit þegar ég hef tíma.
Á Vísi er frétt um að í raun hafi Musterisriddarar verið sýknaðir af ákæru um villutrú á 14du öld en…
Vegna mistaka við skráningu týndist skjal með þessari niðurstöðu og ofsóknir gegn reglunni héldu því áfram.
Þetta sýnir gildi þess að hafa bókasafns- og upplýsingafræðing til að halda utan um skjalamálin.
Annars þá finnst mér mjög vafasamt að fréttin tengir saman Musterisriddarana og Frímúrararegluna án þess að nefna að það sé nú langt frá því að vera sannað.
Ég varð veikur rétt áður en ég kom hingað og ég held að mér hafi ekki ennþá batnað. Reyndar finn ég voðalega lítið fyrir þessu almennt en í dag er ég slappur. Ég var aðeins of virkur um helgina. Ég er annars yfirleitt verstur rétt að morgni til og finn síðan ekkert fyrir þessu þegar líður á daginn.
En til þess að gera þessa færslu áhugaverðari er mynd af ferðahópnum mínum.

Fabian, Marketa, Marianne, Antonia, Kamil, Kristyna og ég. Bak við Fabian er svo Gallarus Oratory.
Ef þið viljið ná ennþá nánara sambandi við mig er hægt að nota oligneisti@hotmail.com fyrir MSN. Ég nota ekki hotmail tölvupóst heldur nota ég tölvupóstfangið olis hjá hi.is.
| S | Má | Þ | Mi | Fi | Fö | L |
|---|---|---|---|---|---|---|
| « sept. | nóv. » | |||||
| 1 | 2 | 3 | 4 | 5 | 6 | |
| 7 | 8 | 9 | 10 | 11 | 12 | 13 |
| 14 | 15 | 16 | 17 | 18 | 19 | 20 |
| 21 | 22 | 23 | 24 | 25 | 26 | 27 |
| 28 | 29 | 30 | 31 | |||
Vefurinn er knúinn af WordPress | Tiga þema eftir shamsulazhar (nokkuð aðlagað þó)