Í umræðum um bókina Tíu litla negrastráka þá virðist vera höfuðatriði hvort að orðið negri sé niðrandi (í mínum huga er aðalatriðið hins vegar hvernig er tekið á umfjöllunarefninu). Á unglingsárum mínum þá þurfti ég því miður oft að umgangast illa þroskaða drengi sem litu niður á svart fólk. Hvaða orð haldið þið að þeir hafi oftast notað um svertingja þegar þeir vildu tala um þá á niðrandi máta? “Negri”. Það er viðmið mitt. Flestir sem nota orðið negri nota það í niðrandi merkingu. Ég læt það því vera.
Góða hliðin á “pólitískri rétthugsun” (sem mér finnst alltaf léleg þýðing á politically correct) er tillitssemi. Hvað er að tillitssemi? Sérstaklega tillitssemi við börn?
Ég auglýsi ennþá eftir því að einhver útskýri fyrir mér boðskapinn í Tíu litlu negrastrákum og hvaða erindi hann eigi við börn.
Ég held að spurning þín um erindið sé röng þar sem hið sjálfgefna er vitanlega að menn megi gefa það út sem þeim sýnist. Færa þarf hinsvegar sérstök rök fyrir því ef takmarka á þann rétt og því snýst umræðan aðalega um hvort rök ritskoðunarsinna séu nægilega sterk til að réttlæta takmörkun á tjáningarfrelsinu. Ef sönnunarbirgðinni yrði almennt snúið við eins og þú leggur til mætti sem dæmi leggja þá spurningu fyrir bloggara eins og þig og mig hvaða erindi skrif okkar ættu á netið og ef við hefðum ekki svör á reiðum höndum væri okkur gert að loka bloggsíðunum.
Haukur, lastu yfirhöfuð það sem ég skrifaði? Allavega er komment þitt ekki í neinum tengslum við það.
Og þetta tiltekna orð á líka ekkert endilega að vera höfuðatriðið í umræðunni. Myndirnar í bókinni eru jú ekki sérlega smekklegar heldur.
Það sem ég þoli allra síst er þegar rasistar, afturhaldsseggir og karlrembur kveinka sér undan pólitískri rétthugsun og kvarta undan því að það sé “bannað” að vera hræddur við útlendinga, halda að guð hafi skapað heiminn eða að konur séu heimskari en menn.
Fólk sem veit ekki betur á bara að sætta sig við að fá á sig gagnrýni.
Nú ég hef kannski misskilið þig. Fannst eins og þú værir að auglýsa eftir því að menn útskýrðu erindi bókarinnar við börn í því samhengi að ef á skorti þá ætti ekki að gefa hana út. Var einungis að benda á gallana við þá nálgun í víðara samhengi. Ég afsaka ef ég hef lesið svona skakkt í þetta hjá þér.
Ég fatta ekki af hverju það að gagnrýna bókina verður sjálfkrafa að kröfu um bann í hugum margra.
Ég er líka augljóslega að vísa í eitthvað annað sem ég skrifa þegar ég segi að ég “auglýsi ennþá eftir því að einhver útskýri fyrir mér boðskapinn…” og það hefði hjálpað þér töluvert að athuga hvað ég var að vísa. Það er næsta færsla á undan og ekki erfitt að finna.