Skammvinn gleði í Sjallanum

Þar sem ég var að fletta upp hinu og þessu í gömlum Dögum þá rakst ég á þetta skemmtilega lesendabréf frá ósáttri ungri stúlku.

skammvinn.jpg

Þið getið smellt á þetta til að sjá þetta stærra. Það vill svo skemmtilega til að við Hafdís fórum saman á næstu tónleika sem Ný dönsk hélt á Akureyri en það var á tíu ára afmæli hljómsveitarinnar (minntust þeir á þetta atvik þá?). Ég fór reyndar líka á tónleika með Fjallkonunni í Sjallanum árið 1995 þar sem Jón Ólafsson minntist á það hve illa fór síðast þegar hann spilaði þar.

  1. Þetta er … dásamlegt.

  2. Ég var nú búin að gleyma bréfinu og fyrirgefa Nýdönsk fýluna. En ballið er í fersku minni.

  3. Endurgreiðsla með öllu óframkvæmanleg? Bjánalegt.

Leave a Comment

NOTE - You can use these HTML tags and attributes:
<a href="" title=""> <abbr title=""> <acronym title=""> <b> <blockquote cite=""> <cite> <code> <del datetime=""> <em> <i> <q cite=""> <strike> <strong>