Mér sýnist að almenningsálitið sé að snúast gegn rasísku barnabókinni. Það er kannski ágætt að þetta mál kom upp til að kenna Íslendingum eitthvað um tillitssemi. Merkilegt hvað það er samt erfitt. Er þjóðin ekki komin lengra en þetta?
Hverjir eru það annars sem fríka út þegar rangt er farið með staðreyndir um Íslendinga í erlendum fjölmiðlum? Er það sama þjóðin og ætlaði að samþykkja umyrðalaust þessa rasísku og ljótu barnabók?
En það er áhugavert að sjá hvernig þessar tvær endurútgáfur fóru vel saman og slógu í gegn, Biblían og Tíu litlir negrastrákar.
tjah, fyrir okkur sem erum fylgjandi endurútgáfunni er þetta bara ekki svo mikið hjartans mál.
ef hópurinn sem er á móti bókinni er svona hávær og tekur þetta svona mikið nærri sér, hvort sem er út af myndunum, orðinu negri eða því að strákarnir eru ’svartir’ vitleysingar (en ekki t.d. allra kynþátta), þá finnst okkur allt í lagi að endurútgáfan sé úthrópuð.
það hefur nefnilega komið fram að fólk er ekkert að tala um að banna eða brenna, bara fordæma og ulla.
við höldum bókinni, þið (háværi minnihlutinn) fordæmið hana - enginn spónn úr okkar aski.
við leyfum líka háværum hópi fólks að öskra þegar Ísland er blammerað í útlöndum - ekki af því að við erum sammála því, heldur af því okkur er alveg sama þótt einhverjir vilji eyða tíma sínum í að úthrópa erlenda bloggara eða blaðamenn á dönskum sorpblöðum.
annar hávær hópur, sama ypptið í öxlunum.
okkur var líka sama þegar þriðji háværi hópurinn gelti klámgestina burt af landinu og hóteli Sögu.
almenningsálitið eins og það endurspeglast í bloggheimum hefur ekki náð tökum á bókaútgáfu í landinu og þá er svo sem enginn skaði skeður.
bækur þar sem persóna eða persónur sem eru úr minnihlutahóp verða fyrir skakkaföllum eða er lýst sem heimskum etc. eru ekki einhver mikilvægur hluti þjóðararfsins, að mati okkar almennings.
né heldur orðið negri.
eða 10 litlar myndir sem Muggur skrifaði á ferð fyrir barnabók.
almenningi er, líkt og með biblíuna, slétt sama - við nennum ekki að rífast í þeim sem finnst bókin rasísk - okkur finnst ekkert að henni en grátum hana ekki heldur.
þið megið bara eiga hana, því ekki viljum við særa fjömenningartilfinningar ykkar.
það er ekki fyrr en háværir hópar fara að eyðileggja eitthvað sem skiptir okkur máli sem við nennum að rísa upp á afturlappirnar.
vonandi verður það ekki um seinan.
f.h. almennings,
Halli
Myndir þú lesa þessa bók fyrir barn?
já, ég held að ég myndi gera það.
orðið negri situr örlítið í mér, en myndirnar og textinn finnast mér ekki ljótar gagnvart kynstofninum.
aðstæðurnar sem strákarnir lenda í tel ég ekki til þess að ala á fordómum gegn kynstofni.
ég satt að segja tengi orðið negri ekki við neitt ljótt, ekki frekar en albinói eða hvítingi, en ég veit að sumir gera það.
negri á sér sögu sem niðrandi orð.
alveg eins og gyðingur þótti sumum eitt sinn ljótt, og mörgum þykir arabi niðrandi núna.
sjálfur er ég stundum kallaður arabi vegna þess að ég er dökkur yfirlitum - ég tek því ekki illa.
ég myndi líklega syngja sambærilegt kvæði um litla óheppna arabastráka, kanastráka og ljóshærða stráka, feita stráka, lúðastráka, valsara- og jafnvel stelpur - án þess að finnast ég vera að nota ljót orð eða tengja líkamleg einkenni við aulaskap.
en þetta er mitt persónulega álit, almenningur er löngu hættur að tjá sig um þetta ;)
Fyrir mér þá eru myndirnar hiklaust rasískar steríótýpur sem eiga ekkert erindi til barna.