Í einhverjum löndum þá væri það hneyksli að ráðherra ljúgi í fréttatíma. Hvað er að þessu samfélagi okkar?
Í einhverjum löndum þá væri það hneyksli að ráðherra ljúgi í fréttatíma. Hvað er að þessu samfélagi okkar?
Jæja, búinn að fá útrás. Nú þarf ég að skrifa um rætur þjóðfræðinnar í Upplýsingunni.
Ég er að verða frekar þreyttur á öllum lygunum. Hvað segir það um málstað ríkiskirkjunnar að fólk skuli þurfa að ljúga til að verja hann?
Netið hjá mér hefur verið hægvirkt síðustu daga. Núna er Fréttablaðið heila eilífð að koma inn til mín. Þessar jólaauglýsingar fara illa með okkur útlendingana sem viljum fylgjast með.
Nú hef ég heyrt eða lesið nákvæmlega útfærslu en ég get eiginlega ekki tekið þátt í hneykslunarkórnum varðandi eiginmannahornið hjá Hagkaup. Það kemur nefnilega reglulega fyrir að við Eygló förum saman í Kringluna og ég er búinn að skoða allt sem ég vil á undan henni. Þá er gott að setjast niður og slaka á í staðinn fyrir að elta hana hálfpirraður og þreyttur.
Ég fékk gesti í kvöld. Bekkjarfélagar mínir John og Karry komu og einnig Steinunn og Liam kærastinn hennar. Ég eldaði en lenti í tölfræðilegri óreglu. Ég vissi fyrirfram að Kari borðaði ekki ost og því gerði ég sérútgáfu af kjúklingaréttinum fyrir hana. Ég vissi hins vegar ekki að Liam borðaði ekki ost og því ruglaði það aðeins hlutföllin. En ekki of illa.
Kvöldið gekk vel. Smá þagnir á köflum en fólk spjallaði meira þegar á leið.
Önnur tölfræðileg óregla var að þrír af fimm drekka ekki. Það gekk lítið á Tópasið og Brennivínið. John lenti í miklum vanda með rauðvínið sitt þar sem enginn tapatogari var í eldhúsinu. Þeir Liam voru komnir langa leið með að mylja niður flöskuhálsinn þegar Rapha kom heim og lánaði þeim tapatogara.
Ef þið viljið ná ennþá nánara sambandi við mig er hægt að nota oligneisti@hotmail.com fyrir MSN. Ég nota ekki hotmail tölvupóst heldur nota ég tölvupóstfangið olis hjá hi.is.
| S | Má | Þ | Mi | Fi | Fö | L |
|---|---|---|---|---|---|---|
| « nóv. | jan. » | |||||
| 1 | ||||||
| 2 | 3 | 4 | 5 | 6 | 7 | 8 |
| 9 | 10 | 11 | 12 | 13 | 14 | 15 |
| 16 | 17 | 18 | 19 | 20 | 21 | 22 |
| 23 | 24 | 25 | 26 | 27 | 28 | 29 |
| 30 | 31 | |||||
Vefurinn er knúinn af WordPress | Tiga þema eftir shamsulazhar (nokkuð aðlagað þó)