Gneistinn

Dagbók og handahófskennt þvaður
Miðvikudagur, 5. desember 2007 klukkan 23:40

Lokahnútar

Það einkennist allt þessa daganna af því hve stutt er í að ég fari. Í næstu viku eru síðustu tímarnir. Áðan keypti í síðasta skipti þvottamynt og setti í þvott í næstsíðasta skipti. Ég er að hugsa um hluti eins og að ég þurfi að ná almennilegri mynd af kennurum og samnemendum mínum. Taka mynd af okkur í þessum gamaldags stólum sem eru inn á skrifstofunni hans Stiofán. Svoleiðis hlutir.

Síðan var ég að spyrjast fyrir um hvernig ég ætti að hafa það þegar ég skila lyklinum og svoleiðis. Hvernig er með þrifin…

Get ég komið öllu ofan í töskurnar mínar? Hvað verður þetta allt þungt? Get ég leyft mér að kaupa eitthvað? Ætti ég að henda einhverju? Mig langar að hirða mest sem ég hef keypt hérna. Lampann og svoleiðis. Ef ég kem því fyrir.

Og síðan eru tvær ritgerðir eftir. Á morgun fer ég og næ mér í heimildir fyrir þær báðar. Síðan ætti það að ganga. Vonandi fljótt.

Það er búið að bjóða mér í eitt kveðjupartí og við John vorum að tala um að hittast líka eitthvað áður en Kari fer heim.

Mjög endalokalegir dagar.

Miðvikudagur, 5. desember 2007 klukkan 12:17

Breytt taktík?

Kannski er það röng taktík að reyna að fá alla til að leiðrétta rangfærslur sínar um málstað okkar sem höfum verið að berjast gegn trúboði í skólum. Hugsanlega væri bara betra að spila leikinn og segja “ókei, við bjóðum upp á málamiðlum, við skulum hætta að berjast gegn trúarbragða- og kristinfræði, jóla- og páskafríum, litlu jólunum og sætt okkur við það að trúboð verði algjörlega bannað í skólum”.

Það er nefnilega þannig að langflestir virðast sammála okkur um að trúboð eigi ekki heima í skólum en fólk fattar ekki að það er það eina sem við erum að berjast fyrir. Ríkiskirkjunni hefur tekist að afvegaleiða fjölmiðlafólk og almenning algjörlega. Leikskólapresturinn hefur viðurkennt að hann stundi trúboð og það sem hefur Vinaleiðarpresturinn systir hans gert. Út með þetta lið.

Miðvikudagur, 5. desember 2007 klukkan 1:20

Nr. 1 að klárast

Jæja, fyrsta ritgerðin svo gott sem tilbúin. Vantar reyndar örlítið upp á lengdina en hún er í raun í skilanlegu ástandi. Sjálfur er ég smá steiktur. Vona að hinar tvær gangi aðeins hraðar.