Gneistinn

Dagbók og handahófskennt þvaður
Mánudagur, 10. desember 2007 klukkan 19:54

Trúleysið nær til UCC

Núna áðan gerðist ég stofnfélagi í trúleysingjafélagi UCC. Þetta var auglýst núna á föstudag og ég hafði samband við náungann. Hann bauð mér að segja aðeins frá reynslu minni og ráðleggja þeim aðeins. Þetta var mjög gaman.

Þetta verður væntanlega fyrsta trúleysingjafélagið í írskum háskóla.

Mánudagur, 10. desember 2007 klukkan 15:46

MacSóley

Ef ég gerðist innfæddur myndi ég kalla mig Óli Gneisti MacSóley.

Mánudagur, 10. desember 2007 klukkan 13:05

Bjánapóstur

En frábært, ég er byrjaður að fá póst frá bjánum.