Gneistinn

Dagbók og handahófskennt þvaður
Fimmtudagur, 31. janúar 2008 klukkan 23:25

Stríð Charlie Wilson

Við skruppum í bíó í kvöld. Fyrir valinu varð myndin Charlie Wilson’s War. Ég vissi nær ekkert um hana fyrirfram. Það kom í ljós að hún var mjög góð. Kom reyndar sérstaklega á óvart hve fyndin hún var. Ágæt sögukennsla fyrir Bandaríkjamenn. Sorglegt samt hve fáir voru í bíó. En ég mæli allavega með henni.

Að gefnu tilefni tek ég fram að ég vissi bara ekkert um íbúa Hverfisgötu.

Fimmtudagur, 31. janúar 2008 klukkan 8:21

Ammæli

Þar sem ég á afmæli á mánudaginn ætla ég að hafa smá boð á laugardagskvöldið. Aðallega afsökun fyrir að spila og baka. Þið vinir mínir sem lesið þetta eruð velkomnir. Gaman væri ef þið mynduð láta mig vita ef þið viljið koma. Ég hef bara boðið formlega þeim sem ég hef rekist á í vikunni. Ég er svo skipulagður.

Miðvikudagur, 30. janúar 2008 klukkan 21:49

Stóra Bingafatamálið

Það er svolítið skrýtið að ég hef ekki ennþá rekist á neinn sem var voðalega hneykslaður á fatakaupum Björns Inga. Augljóslega hafa Framsóknarmenn leyfi til að vera reiðir yfir því hvernig peningum þeirra er eytt en er ekki ljóst að þetta var fyrir flokkinn? Brýtur þetta á einhvern hátt gegn grundvallarprinsippum flokksins? Var ekki aðalmarkmiðið að ná inn manni í Reykjavík og tókst Binga það ekki? Allavega sé ég ekki hvernig svona óáhugaverðar innanflokkserjur geta orðið stórt fjölmiðlamál. Nema kannski fyrir það hve skrýtið það er að einhver sendi út 2000 top secret jólakortadylgjubréf til flokksfélaga sinna. Aldrei fannst mér þetta vera mál sem kom mér við.

Miðvikudagur, 30. janúar 2008 klukkan 8:22

Strætóráðgjafabögg

Ég skil ekki hvers vegna kortin voru tekin út af Ráðgjafanum á Strætó.is. Veit ekki hvaða taktík það er að gera síðuna verri en hún var. Það var svo gott að geta séð svona vel hvernig leiðirnar lágu. Þetta var sérstaklega óþægilegt þegar ég skrapp út á Skaga því þá var ég að taka leið sem ég þekkti ekkert. Það endaði í raun þannig að keyrði út í Grafarvog og tók vagninn þar í staðinn fyrir að reyna að fatta og treysta á leiðirnar sem fara þangað.

Ég var annars núna áðan að kíkja á hvaða leiðir væru færar niður í Borgartún. Af einhverjum ástæðum vildi Ráðgjafinn helst láta mig skipta um vagn á leiðinni þó að þetta ég gæti farið þetta á nákvæmlega sama tíma í einum vagni. Fatta ekki hvaða rök lágu þar á bak við. Reyndar er annað undarlegra. Mér er sagt að fara út klukkan 8:29 til að ná í vagn sem kemur 8:17 og endar niðrí Mjódd 8:36. Venjulega fara vagnar þessa leið á fjórum mínútum.

En að öðru. Þegar Gwen er ólétt þá er rétt að spyrja hvort að það sé orðið opinbert að menn sé aftur farnir að blogga ekki? Ég bara spyr.

Þriðjudagur, 29. janúar 2008 klukkan 19:51

Þreytandi rugg og rugl

Ég er allur með því að rugga bátnum og ýfa upp fjaðrir en hvað gæti verið meira þreytandi en fólk sem gerir þetta einungis til að fullnægja eigin athyglissýki? Að lokum hlustar náttúrulega enginn á þetta fólk. Sem betur fer.

Mánudagur, 28. janúar 2008 klukkan 20:55

Hádegishittingur, hálfgildingsvinna og rólegheit Íra

Í dag var eiginlega fyrsti dagurinn í vinnu en þó ekki. Fór í tíma í H.Í. á vegum vinnunnar í upprifjunarskyni.  Á morgun eru síðan námskeið sem heldur áfram á miðvikudag og fimmtudag. Vinnan hefst í alvörunni á föstudag.

Í hádeginu var gaman. Bókasafns- og upplýsingafræðinördarnir hittust. Yfirleitt eru einhver afföll en við Eygló, Nils, Halli, Danni og Hjördís komumst öll. Ægilega gaman og við vorum að tala um að gera þetta reglulega. Það var rætt um margt og þá sérstaklega ritdeila síðustu viku. Mikið hlegið.

Írar eru rólegir. Ég hef ekki ennþá fengið einkunnir. Í dag fékk ég síðan upplýsingar um fasteignamiðlunin sé að bíða eftir síðasta rafmagnsreikningnum til þess að geta borgað mér það sem ég á inni af tryggingargjaldinu. Enginn flýtir sér.

Mánudagur, 28. janúar 2008 klukkan 11:33

Svefntruflanir

Ég er að skrifa skilgreiningakaflann í ritgerðinni þessa daganna. Í nótt átti ég einstaklega erfitt með að hætta að hugsa um málið. Þurfti að fara á fætur til að skrifa niður hugleiðingar mínar enda er fátt verra en að vakna án þess að muna allar góðu hugmyndirnar sem maður fékk fyrir svefninn.

Sunnudagur, 27. janúar 2008 klukkan 14:25

Dr. Gunni og mótmælalögin

Ég hlóð núna áðan niður lögunum á mótmælaplötunni Að gefnu tilefni með Dr. Gunna. Gamli Góði Villi er augljóslega toppurinn á plötunni. Ég pantaði mér eintak eins og skot.

Sunnudagur, 27. janúar 2008 klukkan 3:27

Grisjun…

Í kvöld var Eygló að grisja fataskápinn okkar. Hún fékk mig til að flokka gömul föt sem virk, hálfvirk og óvirk. Sum voru send í fjargeymslu en öðrum verður eytt.

Laugardagur, 26. janúar 2008 klukkan 23:40

Spil

Hvað er spil?

Eldri færslur »