Gneistinn

Dagbók og handahófskennt þvaður
Miðvikudagur, 2. janúar 2008 klukkan 15:35

Hinn dularfulli Vlad

Áðan fékk ég tölvupóst frá einhverjum Vlad. Ég gerði strax ráð fyrir að þarna væri um ruslpóst að ræða. En ég sá síðan orðið folklorist og ákvað að eyða því ekki alveg hugsunarlaust. Ég skoðaði það aðeins og varð ringlaður í smátíma. Hver var þessi Vlad og hvers vegna var hann að senda mér ruglingslegan póst þar sem var verið að fjalla um þjóðfræði netsamfélaga.

Ég ákvað að skoða hausinn á emailinu nánar til að sjá hvort að lénið sem Vlad notaði myndi gefa mér einhverja vísbendingu. Kemur þá í ljós að fyrrihluti tölvupóstfangsins er valdimartr sem gefur þá til kynna að Vlad sé kennarinn minn hann Valdimar. Þegar ég skoðaði póstinn síðan betur áttaði ég mig á að þetta væri væntanlega umræða af þjóðfræðipóstlista. Nú er bara spurning hvort ég hafi eytt fleiri póstum frá þessum Vlad án umhugsunar.

Miðvikudagur, 2. janúar 2008 klukkan 14:39

Flugeldasóðar

Út í garði er mikið af rusli eftir nágranna mína sem voru að skjóta upp flugeldum um áramótin. Af einhverjum ástæðum hafa þeir ekki séð sér fært að hirða þetta upp eftir sig. Þetta er eitt af því sem fer í taugarnar á mér við flugelda, enginn tekur til eftir sig. Ábyrgð fólks virðist hverfa um leið og er búið að kveikja í. Þetta er voðalegur sóðaskapur.

Miðvikudagur, 2. janúar 2008 klukkan 1:40

Nýja tölvan

Fékk tölvuna í gær og hún er að komast í gott form. Í raun lét ég tryggingasala selja mér tölvu. Fingrafaralesarinn er að mínu mati of kúl til að nota ekki. Síðan er víst eitthvað öryggi í því.