Þar sem ég á afmæli á mánudaginn ætla ég að hafa smá boð á laugardagskvöldið. Aðallega afsökun fyrir að spila og baka. Þið vinir mínir sem lesið þetta eruð velkomnir. Gaman væri ef þið mynduð láta mig vita ef þið viljið koma. Ég hef bara boðið formlega þeim sem ég hef rekist á í vikunni. Ég er svo skipulagður.
Ætli ég verði ekki heima að undirbúa afmælisgjöfina sem ég er búin að lofa að reyna að gefa þér á mánudaginn ;) Geri mitt allra besta til að standa við það!