Gneistinn

Dagbók og handahófskennt þvaður
Föstudagur, 1. febrúar 2008 klukkan 21:57

Öskrandi strætóbílstjóri og hinir sem voru bara á frívakt

Fór í Strætó í morgun. Hitti Helgu Þóreyju eins og svo oft áður. Við vorum í leið 4 og bara á næstu stoppistöð eftir að ég kom inn. Einhver stúlka hafði ýtt á stopp takkann og beið við miðdyrnar. Þegar vagninn nemur staðar opnast framdyrnar og ungum manni er hleypt inn. Allt í einu byrjar bílstjórinn að öskra aftur fyrir sig “Halló! Halló! Heyrirðu ekki? Halló?”. Öll vorum við frekar ringluð og einhver spyr hann hvað sé málið. Þá segir hann að miðhurðin sé frosin og stúlkan þurfi að fara út að framan. Kallinn var frekar æstur. Stúlkan fer út. Farþegarnir horfðu mjög undrandi á hvern annan. Hvers vegna í ósköpunum var náunginn að öskra “Halló” í sífelldu í stað þess að segja strax að hurðin væri frosin? Mjög skrýtið. Þetta var sami vagnstjóri og var í gær og líklega sá sami og stakk mig af á miðvikudag með því að vera einni og hálfri mínútu of snemma.

Í dag skrapp ég á málþing um netið og bókmenntir. Að öðrum ólöstuðum bar Ásgeir höfuð og herðar yfir aðra sem þarna komu fram. Hann var með nokkrar áhugaverðar hugmyndir. Ég hitti óvænt náunga sem mig langaði að spjalla við varðandi ritgerðina mína þarna og ræddi aðeins við hann. Heppileg tilviljun.

Þegar ég kom út á stoppistöð við gamla FS var klukkan 18:30. Næsti vagn átti að koma sjö mínútum seinna. Ég beið, og beið og beið. Vagninn kom loksins ríflega fimmtán mínútum of seint. Ég og gamli maðurinn vorum orðnir svolítið leiðir á biðinni. Það var reyndar sérstaklega skrýtið að það keyrðu einir fjórir vagnir á frívakt framhjá okkur.

Ég skil að áætlanir riðlast, sérstaklega á föstudögum. En það sem ég skil ekki er af hverju er ekki bætt við vögnum til þess að vega á móti þessum ruglingi. Væri ekki hægt að bæta við vögnum og ná að leiðrétta áætlanir þannig? Þeir voru nokkrir lausir núna allavega.

Föstudagur, 1. febrúar 2008 klukkan 19:53

Viðtöl

Fréttamaður: Er þetta ekki bölvuð vitleysa?
Viðmælandi 1: Nei, þetta er frábært.
Fréttamaður: Er það ekki  rétt hjá henni? Er þetta ekki bara frábært?
Viðmælandi 2: Nei, þetta er vitleysa.
Fréttamaður: Er það ekki bara rétt hjá honum?

Þetta er hörkublaðamennska.

Föstudagur, 1. febrúar 2008 klukkan 13:26

Krossfarinn í Kópavogi

Ég man þegar ég horfði á þætti Terry Jones um krossferðirnar að mér þótti stórskrýtið þegar hann upplýsti að krossfarar hefðu verið gjarnir á að slátra kristnu fólki alveg eins og múslímum. Ekki að ég styðji hið síðarnefnda, mér finnst þetta bara skrýtið. Ef markmið krossferðanna var að útbreiða kristindóm þá hefði verið góð ákvörðun að slátra ekki kristnu fólki. En ætli þetta kristna fólk hafi ekki verið af röngu tegundinni?

Krossfari nútímans á við sama vanda að stríða. Hrafn Sveinbjarnarson ætlar að bjarga skjalamálum þjóðarinnar, sem er þarft verk, en á leiðinni virðist hann ætla að eyða mestri orku í að slátra skjalastjórum. Ekki góð taktík.