Það er áhugavert að sjá speglun í siðleysi. Hryðjuverkamenn í Írak senda fólk sem ekki hefur burði til að skilja glæp sinn til að myrða fólk en í Texas tók Bush fólk af lífi sem ekki hafði burði til að skilja glæp sinn.
Það er áhugavert að sjá speglun í siðleysi. Hryðjuverkamenn í Írak senda fólk sem ekki hefur burði til að skilja glæp sinn til að myrða fólk en í Texas tók Bush fólk af lífi sem ekki hafði burði til að skilja glæp sinn.
Badmintonið var hressandi. Siggi og Sigrún eru að þjálfast upp. Meira um hlaup og minna um uppgjafir. Við lögðum líka á okkur að fara eftir nýjum reglum sem voru víst samþykkt í fyrra eða eitthvað. Þeir virðast vera skemmtilegri en þær gömlu. Ég náði að hrufla á mér hnéið í tilraun til að bjarga. Það hefði verið flott ef það hefði tekist en það tókst ekki.
Seint í gærkvöldi langaði mig dálítið í kók og ákvað að láta það eftir mér. Ég spurði Eygló hvort hún myndi vilja rölta með mér út í búð en henni fannst af einhverjum ástæðum of kalt. Ég fór því út og var litið til himins. Það sem ég sá var stórkostlegt. Norðurljósin voru stórkostlegri en ég nokkru sinni séð þau. Ég ýtti eftir Eygló þar til hún kom líka út og ekki sá hún eftir því. Við ráfuðum um í dáltinn tíma horfandi út í loft eins og kjánar. Þetta var svo sannarlega magnað.
Ef þið viljið ná ennþá nánara sambandi við mig er hægt að nota oligneisti@hotmail.com fyrir MSN. Ég nota ekki hotmail tölvupóst heldur nota ég tölvupóstfangið olis hjá hi.is.
Vefurinn er knúinn af WordPress | Tiga þema eftir shamsulazhar (nokkuð aðlagað þó)