Spenntir lesendur sem vilja lesa meira um stóra skjalastjórnardissmálið geta farið á Hugsandi. Sjálfur skammast ég mín reyndar svolítið fyrir að nenna að standa í þessu.
Þeir sem vilja meiri hasar (ef það er hægt) hafa örugglega frekar áhuga á úttekt Matta á Íslamistum með afslætti. Sjálfur hef ég ekki lesið umræddar bækur en umfjöllun Matta er allavega sú áhugaverðasta sem ég hef lesið.
Ég er að byrja að lesa Íslam með afslætti, er bara á fyrstu greininni. En ég er strax orðin ósammála Matta hérna:
“Tilraun til að vekja viðbrögð með skopmyndum í lok bókarinnar er gjörsamlega misheppnuð. Skopmyndirnar ná hvorki að vekja bros né hneykslan og missa algjörlega marks”.
Skopmyndirnar náðu nefnilega bæði að hneyksla mig og mála á mig skítaglott.
Það er eflaust erfiðara að hneyksla mig :-)