Í dag fékk ég tilboð um að kaupa ekta Queen skartgripi á mörg hundruð pund. Ég hugsa að ég láti það vera.
Annars minnir þetta mig á hvað þessi Eniga meniga auglýsing Byrs fer í taugarnar á mér. Ekki það að þetta lag sé mér mikils virði. En er þetta ekki upprunalegi textinn sem ekki er sunginn eitthvað á þessa leið?
Eniga - meniga
allir rövla um peninga
Súkkadí - púkkadí
kaupa meira fínerí
kaupæði - málæði
er þetta ekki brjálæði
Það væri nú hressandi ef bankinn myndi nota þetta óbreytt.