Gneistinn

Dagbók og handahófskennt þvaður
Mánudagur, 31. mars 2008 klukkan 14:49

Stundum…

… finnst mér fólk alveg glatað. Kannski að biskupinn hafi bara rétt fyrir sér og allir séu aðallega að hugsa um sjálfa sig.

Mánudagur, 31. mars 2008 klukkan 14:20

Scorsese og Allen

Ef gerð yrði mynd um Martin Scorsese þá ætti Woody Allen að leika hann. Eftir að hafa séð trailerinn að Shine the Light núna nokkrum sinnum þá finnst mér þeir alveg voðalega líkir í háttum og talsmáta.

Mánudagur, 31. mars 2008 klukkan 10:31

Fljótari í vinnuna/óhóf

Það má nefna að ég var fljótari í vinnuna en venjulega í morgun. Held að það sé alveg fín hugmynd að loka Grafarvogsbúa og Mossfellsveitunga inni alla daga. Maður sá hins vegar að bílastraumurinn lá í gegnum mitt hverfi af því að fólk var að flýja mótmælin. Þetta er hverfi sem á að vera með 30 kmh hámarkshraða enda er skóli þarna en pirrað fólk er væntanlega að flýta sér meira en það.

Það sem ergir mig er hve óhófleg þessi mótmæli eru. Það væri alveg hægt að koma sömu skilaboðum til skila með frumlegri hætti. En kannski er markmiðið ekki að vekja athygli heldur einfaldlega að kúga. Ef þetta virkar þá er alveg spurning hvort að friðarsinnar/umhverfisverndarsinnar/trúleysingjar þurfi ekki einfaldlega að vera óhóflegri í aðgerðum sínum og kúga stjórnvöld.

Mánudagur, 31. mars 2008 klukkan 8:32

Vörubílstjórar

Ég verð að játa að mér þykir ákaflega undarlegt að vera með aðgerðir eftir að hafa verið boðið á fund með ráðherra.

Annars þá er ég til í aðgerðir strax. Hærri þungaskatta sem verði notaðir til að greiða niður strandsiglingar.

Sunnudagur, 30. mars 2008 klukkan 22:41

23 mínútur

23 mínútum eftir að ég birti síðustu færslu gúgglaði einhver Stóra planið og kom hingað inn í leit að gagnrýni. Ég man þá daga að það tók leitarvélar marga mánuði að uppfæra sig.

Sunnudagur, 30. mars 2008 klukkan 22:12

Stóra planið

Við fórum á Stóra planið í kvöld. Þetta er voðalega skrýtið. Myndin virtist ekkert vita hvað hún væri eða hvert hún væri að fara en var samt nokkuð góð.

Sunnudagur, 30. mars 2008 klukkan 19:42

Góðverk fyrir fallegri borg

Eru einhver góðverkasamtök tilbúin að taka að sér að mála yfir ljót auglýsingaskilti með hvítri málningu? Eða bara flott graffítí?

Sunnudagur, 30. mars 2008 klukkan 11:28

Fitna

Ég voni að ég fitni ekki af þessum kökuafgöngum.

Sunnudagur, 30. mars 2008 klukkan 3:36

Vantrúarhittingur

Þetta var mikið gleðikvöld. 20 manns í Vantrúarhitting. Mikið spjallað, mikið hlegið. Endaði þó að of drukkni maðurinn fékk gríska áletrun á ennið sem áminningu um að drekka ekki of mikið. Ég bakaði muffins, skúffuköku og ostabrauð. Kakan var fallega skreytt.

vantrukaka.jpg

Nú er partíið búið og við búin að taka til og vaska upp það sem ekki má fara í uppþvottavélina. Gott að klára svona strax, það er sérstaklega gaman svona daginn eftir.

Laugardagur, 29. mars 2008 klukkan 20:30

Glæpaalda

68,5% óttast glæpaöldu í Breiðholti samkvæmt Vísi. Ég hlýt að vera bilaður því ég er algjörlega óhræddur búandi hérna. Samt er vafasamt fólk á leiðinni í kvöld. En ég bakaði fyrir það svo það ætti að vera til friðs.

Það er kannski rétt að taka fram að engir glæpir hafi verið framdir hérna í Bakkahverfinu. Raunar býr fólkið sem rændi Matta hérna rétt hjá en það fer greinilega út fyrir Bakkana til að fremja sín brot.

Eldri færslur »