Gneistinn

Dagbók og handahófskennt þvaður
Sunnudagur, 2. mars 2008 klukkan 22:24

Síðasti séns

Þið sem hafið ekki óskað Eygló til hamingju með afmælið hafið um eina og hálfa klukkustund til þess. Þið getið gert það á fésbók, mínumgeim, apanum eða bara eitthvað annað.

Hún er alveg tuttuguogfimm ára.

Sunnudagur, 2. mars 2008 klukkan 1:54

Dilbertspilið

Við fórum í mat og spilamennsku til Árnýjar og Hjörvars. Dilbert spilið var prufukeyrt og það fær alveg tvo þumla upp. Góðar leiðbeiningar. Ekki leiðinlegt á milli þess sem maður gerir. Húmorinn alveg í takt við strípurnar. Sérstaklega gott fyrir þá sem fíla Dilbert og þá sem hafa unnið á skrifstofum.

Ég held að Spilavinir eigi þetta örugglega til þannig að þið getið farið þangað og keypt það ef þið eruð áhugasöm.