Davíð Þór sagði í Íslandi í dag það vera kost við Obama að hann hefði búið í útlöndum. John McCain er líka heimsborgari sem hefur sko alveg búið heillengi í útlöndum líka og lærði svolítið sem aðrir Rebúblikanar eiga erfitt að skilja, að pyntingar eru vondar.
Sem ég hjólaði heim úr vinnu í dag hlustaði ég á podcast hvar sagt var að Obama hefði þann ágalla að vera lítill heimsborgari, þ.e. hvorki fróður né áhugasamur um önnur lönd.
Viðmælandi sagði í hneykslistón að hann vissi hreinlega ekki hvenær Obama hefði síðast verið í Evrópu.
Held að heimildin sé eftirfarandi:
http://downloads.bbc.co.uk/podcasts/radio/newspod/newspod_20080304-1727.mp3
Hefurðu ekki séð landakort? Evrópa er greinilega langmest áberandi, efst og svona.
McCain virðist samt ekki hafa lært sína lexíu; þótt hann hafi borið fram frumvarp fyrir þremur árum gegn pyndingum (bíddu aðeins, voru þær ekki bannaðar þegar?) þá hefur hann stutt þær nýlega.