Það sem mér finnst verulega áhugavert í allri umræðunni um að það sé svo erfitt að varðveita skjöl sem eru á tölvutæku formi er að gamlir leikir virðast lifa góðu lífi. Ég myndi segja að það sé í raun ekkert sem stöðvar varðveislu ef viljinn er fyrir hendi. Reyndar búa tölvuleikir svo vel að þeir hafa verið gefnir út í ótal eintökum. En samt.
Hvernig gengur annars með Sinclair Spectrum herminn?
Fuse hermirinn for the win.
http://en.wikipedia.org/wiki/Fuse_(emulator)
Ég var á góðu róli í neðstu deild í Football Manager en gat því miður ekki vistað leikinn. Ef mér tekst það er mér ekkert að vanbúnaði að sturta fjölskyldu- og félagslífi mínu niður um klósettið af Football Manager-fíkn.