Ég er sammála því sem fólk hefur verið að segja um gamla grínið sem var á RÚV. Kynningarnar voru ekki að gera sig. Sjálfur saknaði ég meiri greiningar á gríninu. Það hefði ekki verið mikið mál að fá Kristínu Einars í það en hún hefur verið að gramsa í þessu í filmusafninu hjá RÚV í lengri tíma og er með margar skemmtilegar pælingar. Efni í nokkra þætti í raun.
Þarna var kastað til höndunum, ef það eiga að vera kynningar á svona efni þarf að semja þær af alúð en þær eiga ekki að líta út fyrir að vera spunnar á staðnum.