Í gamla daga var hægt að kópera leiki sem voru á kassettum í tæki sem tók tvær spólur. Ætti ekki að vera hægt að taka upp af spólu yfir á stafrænt form og síðan taka aftur seinna upp hljóðið á kassettu? Er þarna langþráð leið til að dreifa heitustu leikjum fyrirhluta níunda áratugarins í gegnum netið? Væri kannski hægt að tengja geislaspilara við gamlar tölvur og tengja þannig framhjá gömlu kassettudrifunum? Maður gæti komið allavega tugum leikja á disk með þessu móti og þyrfti aldrei að spóla fram og til baka.
Sem minnir mig á að ég fattaði leið til að minnast á Boulder Dash í MA-ritgerðinni minni. Það kætti mig.
Já það myndi virka á meðan að þjöppun og annað myndi ekki skemma þetta í import ferlinu.
Þetta eru bara uncompressed wav skrár sem Sinclair vélarnar nota.
Er ekki til Sinclair Spectrum emulator sem tekur wav-skrá sem input?
Ég er sko að leita eftir því að geta spilað Boulder Dash í alvöru Amstrad CPC.
Væri ekki einfaldara að finna bara leikinn á ebay? Þó það sé vissulega nördalega svalt að exporta digital skránni aftur yfir í analog form til að spila í orginal vél :)
Ég hef með góðum árangri hlaðið inn leikjum á Spectrum 48K vélarnar mínar beint úr tölvu með einfaldri mini-jack snúru.
Finnur bara leikinn á netinu (hljóðskrána) og spilar hann inn í Amstradinn.
Kúl.