Ég er ákaflega glaður með Breiðhyltinginn Gest Traustason sem afgreiðir fordóma Moggabloggskóngsins snyrtilega í kommenti við færslu um “Ofbeldið í Breiðholtinu“. Hann segir m.a.:
Staðreyndin er enn sú að fleiri líkamsárásir eru á Akureyri (íbúafj. um 15.000) en í Breiðholtinu (milli 20.000 og 25.000) [og það þrátt fyrir að þessar 15.000 hræður hafa að lágmarki 5 lögreglumenn 24/7 til að halda uppi lögum en í Breiðholtinu er einn hverfislögreglumaður á skrifstofutíma...].
Semsagt, Stebbi ætti að flytja suður í Breiðholtið ef hann hræðist ofbeldi. Þáttur fjölmiðla er líka mikill eins og Gestur bendir á. Allt matreitt til að búa til þessa mynd af Breiðholtinu.
Já þetta er snyrtilega afgreitt. Ég hef haft mig hljóðann í allri þessari Breiðholtsfréttagusu sem gengið hefur yfir mann en hef verið svo oft nálægt því að skrifa einhverja langloku en ekki nennt því.
Gunnar Eyjólfsson leikari er frumbyggji í Breiðholti, byggði hús í Stekkjunum einna fyrstur manna ásamt Guðmundi Jaka heitnum er með skemmtilegann sið varðandi Breiðholtið okkar. Þegar hann sér frétt um að brotist hafi verið inní bíl í Vesturbæ Reykjavíkur en í sama blaði er kannski frétt um samskonar atvik í Keilufelli hringir hann fjölmiðilinn sem birti fréttina og spyr í hvaða götu í Vesturbænum þetta var því það hafi ekki komið fram.
Láttu mig þekkja þetta. Ég bý í miðbænum og það er eins og sumum finnist það vera dauðasynd og ábyrgðarleysi af verstu gerð að ég skuli voga mér að ganga um þar ein á ferð á öllum tímum sólarhringsins. Svona eins og maður tekur sér gjarnan bessaleyfi til þess að gera í sínu eigin hverfi.
En þú veist að á Akureyri eru þetta utanbæjarmenn að megninu til. Örugglega flestir úr Breiðholtinu. Hins vegar verð ég nú að segja, með hæfilegri ritskoðun, að þessi blessaði bloggari er ekkert sérstaklega marktækur yfirleitt.