Gneistinn

Dagbók og handahófskennt þvaður
Laugardagur, 29. mars 2008 klukkan 11:34

Vafasamar trúboðsaðferðir og tóm vitleysa

Það er áhugaverða lína í frétt Mbl um inngöngu einhvers dópista í ákveðinn trúarsöfnuð.

Vísindakirkjan hefur frá stofnun verið harðlega gagnrýnd fyrir vafasamar trúboðsaðferðir og þá er kennisetningin sjálf sögð vera tóm vitleysa.

Eitthvað minnir þetta nú á gagnrýni sem kristni hefur fengið á sig í gegnum tíðina. Sérstaklega náttúrulega í byrjun. Kannski að Vísindaspekikirkjan verði teljist virðuleg kristni með tíð og tíma.

Föstudagur, 28. mars 2008 klukkan 23:57

Að yngjast og eldast á sama deginum

Mér þótti ég vera gamall þegar ég heyrði tvær unglingsstelpur ræða um Dumb and Dumber eins og einhverja fornaldarmynd. Ég yngdist aðeins þegar ég sá að Ármann er í fyrsta skipti að taka eftir náttbuxum utandyra tískunni.

Föstudagur, 28. mars 2008 klukkan 19:26

Olíuverð

Ætli fleiri hefðu nennt að mótmæla Íraksstríðinu ef þeir hefðu áttað sig á að það myndi hækka olíuverð?

Föstudagur, 28. mars 2008 klukkan 12:44

Breiðholtið

Ég er ákaflega glaður með Breiðhyltinginn Gest Traustason sem afgreiðir fordóma Moggabloggskóngsins snyrtilega í kommenti við færslu um “Ofbeldið í Breiðholtinu“. Hann segir m.a.:

Staðreyndin er enn sú að fleiri líkamsárásir eru á Akureyri (íbúafj. um 15.000) en í Breiðholtinu (milli 20.000 og 25.000) [og það þrátt fyrir að þessar 15.000 hræður hafa að lágmarki 5 lögreglumenn 24/7 til að halda uppi lögum en í Breiðholtinu er einn hverfislögreglumaður á skrifstofutíma...].

Semsagt, Stebbi ætti að flytja suður í Breiðholtið ef hann hræðist ofbeldi. Þáttur fjölmiðla er líka mikill eins og Gestur bendir á. Allt matreitt til að búa til þessa mynd af Breiðholtinu.

Föstudagur, 28. mars 2008 klukkan 8:41

Fyrr er ekki betra

Strætó var ekki of seinn í morgun, hann var 4-5 mínútum of snemma. Við fengum að bíða þarna 8 manns eftir næsta vagni. Ég sendi kvörtun á heimasíðunni, tvisvar raunar því síðast þegar ég kvartaði (yfir leiðabreytingum) þá var mér ekki svarað.

Fimmtudagur, 27. mars 2008 klukkan 20:34

Istorrent málinu vísað frá

Það er stóráhugavert að Istorrent málinu sé vísað frá. Ég kíkti snöggt yfir dóminn en hef ekki neitt sérstakt um hann að segja. Stefán Bogi er hins vegar með pælingar sem vert er að kíkja á (já, þrátt fyrir allt þá finnast áhugaverð Moggablogg). Það væri plús ef fjölmiðlar leggðu það í vana sinn að tala við óháða lögfræðinga um svona úrskurði því það er mjög gagnlegt.

En þetta er ekki búið. Istorrentmaðurinn býst við að þetta fari fyrir Hæstarétt. DC++ málið á líka væntanlega eftir að fara sömu leið. Spennandi.

Istorrentmálið er reyndar sérstaklega áhugavert fyrir það að þegar höfundar báðu um það var efnið tekið út. Annars þá finnst mér alveg merkilegt hvað höfundaréttarsamtök bæði hér og erlendis hafa náð að eyðileggja fyrir sér með málflutningi sínum. Það er alveg ljóst að í grunninn þá eru þau réttum megin siðferðilega en ná að klúðra því algjörlega með hroka sínum. Sorglegt.

Fimmtudagur, 27. mars 2008 klukkan 14:01

Óhæðanlegur

Ég ætlaði að fara að hæðast að StebbaFr en ég sá enga leið til að gera betur en hann sjálfur.

Fimmtudagur, 27. mars 2008 klukkan 12:56

Sjóræningjakóperingar - tæknileg spurning

Í gamla daga var hægt að kópera leiki sem voru á kassettum í tæki sem tók tvær spólur. Ætti ekki að vera hægt að taka upp af spólu yfir á stafrænt form og síðan taka aftur seinna upp hljóðið á kassettu? Er þarna langþráð leið til að dreifa heitustu leikjum fyrirhluta níunda áratugarins í gegnum netið? Væri kannski hægt að tengja geislaspilara við gamlar tölvur og tengja þannig framhjá gömlu kassettudrifunum? Maður gæti komið allavega tugum leikja á disk með þessu móti og þyrfti aldrei að spóla fram og til baka.

Sem minnir mig á að ég fattaði leið til að minnast á Boulder Dash í MA-ritgerðinni minni. Það kætti mig.

Fimmtudagur, 27. mars 2008 klukkan 12:03

X-kynslóðin

Wikipedia segir að X-kynslóðin sé fædd á bilinu 1964-1980. Það þýðir að ég er af henni. Næsta kynslóð hefur ekki jafn fast nafn. Hugsanlega Y. Mér fannst @-kynslóðin flottara. Hafa sérfræðingar ákveðið hvenær klámkyslóðin fæddist? Það er allavega ekki á Wikipediu sýnist mér.

Þriðjudagur, 25. mars 2008 klukkan 23:21

Hnéið

Ég er búinn að vera með ákaflega pirrandi verk í hnéinu í dag. Það er allt í lagi ef ég sit bara og hef það beygt en þegar ég rétti úr því eða/og stend í löppina þá kemur verkurinn. Ekki mikið sem maður gerir þegar maður gengur ekki sársaukalaust. Held að þetta sé að skána. Vona að ég verði hress á morgun og komist jafnvel í badminton. Það væri pirrandi að missa af tveimur tímum í röð.

En þetta skýrir samt ekki bloggleysi dagsins.

« Nýrri færslur | Eldri færslur »