Gneistinn

Dagbók og handahófskennt þvaður
Miðvikudagur, 30. apríl 2008 klukkan 13:52

Evrópusambandið

Mér sýndist Guðni Ágústsson einhvers staðar tala um að þetta sé slæmur tími til að sækja um aðild að Evrópusambandinu. Ég held að það sé rétt. Fáránlegt að ætla að fara þar inn eins og efnahagurinn er. Hins vegar gæti verið rétt að það myndi hjálpa okkur ef við myndum segjast ætla að sækja um aðild þegar efnahagurinn lagast. Annars er ég laus við að vita hvort það myndi hjálpa okkur að vera í ESB eða ekki. Ég held reyndar að flestir sem tjái sig um þessi mál séu líka lausir við að vita það.

Miðvikudagur, 30. apríl 2008 klukkan 8:54

Auðvitað er Guðlaugur Þór að ráðast á heilbrigðiskerfið

Guðlaugur Þór getur ekki ráðist á heilbrigðiskerfið með einkavæðinguna eina að vopni. Hann verður því að nota lymskulegri aðferðir. Ein leið til þess er að brjóta það niður innan frá og er það sem hann virðist vera að gera. Evróputilskipanir eru að sjálfssögðu ekkert nema yfirvarp. Það hefði ekki þurft að vera neitt stórmál ef vilji hefði verið því að aðgerðirnar myndu ekki lækkað launin hjá hjúkrunarfræðingunum (sem ættu með réttu að vera hálaunastétt). Hvað ætli gerist á næstunni? Ætli Guðlaugur sjái sig ekki tilneyddan til að koma verkefnum, arðbærum verkefnum, til einkaaðila vegna þess ástands sem hann sjálfur skapaði.

Hvar er Samfylkingin? Mér sýnist að hún ætli að vera meðfærilegra leikfang heldur en Framsókn.

Þriðjudagur, 29. apríl 2008 klukkan 15:58

Nató vill mig

Do you study Political Science, International Relations or Security Studies?

Are you an interdisciplinary candidate with qualifications in Economics, Engineering, or Human Resources?

Have you studied Information Technology and Library Sciences? Do you study Aeronautics or Engineering?

Your background is Media, or Journalism?
You speak Russian or Arabic?

Are you able to conduct independent research and analysis?

NATO needs your skills !

Verst fyrir Nató að ég vil ekkert með þá hafa.

Þriðjudagur, 29. apríl 2008 klukkan 14:13

Aðdáun mín á Eygló

Ef ég leita að nafninu Eygló í færslum sem ég hef skrifað á þetta blogg þá fæ ég 549 færslur. Það er reyndar merkilega mikið af því að ég er mjög gjarn á að segja “við” þegar ég er að tala um hana.

Ef ég leita í Google á blogginu mínu þá fæ ég hins vegar 2370 niðurstöður. Það er ekki samræmi í því. Ef maður raunverulega skoðar niðurstöðurnar þá sér maður að Google vísar í raun ekki nema á 591 síðu þar sem ég tala um Eygló. Það er mun nær.

Mannvitsbrekkan Gísli Freyr Valdórsson, sem einu sinni var æskulýðsfulltrúi hjá þjóðkirkjunni, leitaði af einhverjum ástæðum að því hve oft ég hefði bloggað um Ármann Jakobsson. Hann fékk 2200 niðurstöður og notaði sína takmörkuðu andlegu burði til að álykta að ég hefði bloggað svo oft um manninn. Honum þekkir náttúrulega ekki Google og sá því ekki að í raun voru síðurnar bara 82. Hann áttaði sig ekki heldur á að eitthvað af þessu kemur tvöfalt inn. Ég læt WordPress leita að Ármanni hjá mér og þá fundust 48 færslur. Til gamans má geta að ég hef bloggað í fimm ár hérna og hef skrifað um 4000 færslur.

En hvað um það. Ég er Ármannsfan og játa það alveg. Hann er skemmtilegasti penni sem ég hef lesið á netinu og fer ekkert ofan af því.

Þriðjudagur, 29. apríl 2008 klukkan 10:19

Eignaspjöll en ekki list

Lögreglumaður segir að veggjakrot sé eignaspjöll en ekki list. Maður hlýtur að spyrja hvort að eitt þurfi að útiloka annað?

Mánudagur, 28. apríl 2008 klukkan 23:37

Cosmos - dásamlegir sjónvarpsþættir

Við vorum loks að klára að horfa á Cosmos. Fyrir þá sem ekki vita þá eru þetta þættir sem bandaríski vísindamaðurinn Carl Sagan gerði og voru fyrst sýndir árið 1980. Þetta eru um margt merkilegir þættir þar sem Sagan fjallar um alheiminn, þróun lífs á jörðunni og þekkingarleit mannsins. Það er stórkostlegt að svona gamlir þættir geti ennþá heillað mann þetta mikið. Mikið til er þetta náttúrulega sjarmi Sagan sjálfs. Ég verð að mæla með að þeir sem eiga kost á því panti sér dvd með þáttunum eða reddi sér þeim með öðrum leiðum.

Næsta skref er væntanlega að lesa bækurnar hans sem ég hef aldrei komið mér í.

Mánudagur, 28. apríl 2008 klukkan 14:02

Blogg celeb

Ég veit ekki alveg hvað mér á að finnast um að vera titlaður blogg-celeb. Og rétt er að taka fram að við Hildur Edda erum bara vinir ef einhver ætlar að oftúlka.

Mánudagur, 28. apríl 2008 klukkan 9:24

Skrudda og Negrastrákarnir

Það er töluvert algengt að íslenskir útgefendur láti prenta bækur sínar erlendis. Þetta gerir Skrudda til dæmis. Þegar íslenskar bækur eru skráðar hjá Landsbókasafni Íslands - Háskólabókasafni er landið sem bækurnar eru prentaðar í skráð. Ef við förum í Gegni og leitum uppi allar bækur sem Skrudda gaf út í fyrra þá fáum við 29 færslur. Þegar þessar niðurstöður eru skoðaðar þá kemur í ljós (með því að fara í svið 260 í MARC sniðinu) að yfirgnæfandi meirihluti bókanna eru prentaðar erlendis. Í raun er það bara ein bók sem er prentuð innanlands og það er Negrastrákarnir.

Það gætu verið ýmsar ástæður fyrir þessu en ég hef eina tilgátu. Skruddumenn hafa einfaldlega verið hræddir við það hvernig erlendir samstarfsaðilar þeirra myndu bregðast við þegar þeir sæu hverslags bók útgáfan væri að gefa út og það hefði slæm áhrif á samstarfið. Hefur einhver betri tilgátu?

Mánudagur, 28. apríl 2008 klukkan 8:12

Það borgar sig….

Forsíðufrétt Fréttablaðsins um að það borgaði sig að taka fíkniefnaneytendur í meðferð kom mér ekki á óvart. Mig grunar nefnilega að það eigi við fjölmargt í velferðarkerfinu að langsamlega ódýrasta lausnin sé að taka á vandanum sem allra fyrst og reyna að gera það vel.

Ég vil annars endurtaka það sem ég hef áður sagt að það er nauðsynlegt að dæma fíkniefnaneytendur sem brjóta af sér í meðferð og/eða skylda þá til að mæta í eftirlit þegar þeir losna.

Mánudagur, 28. apríl 2008 klukkan 0:48

CIA og Facebook

Mig langar alltaf að búa til svona leyniviðburð á Facebook: “Mólótov kokteill þann 1. maí í Þingholti” og sjá hvort að CIA bankar á dyrnar hjá mér.

Eldri færslur »