Gneistinn

Dagbók og handahófskennt þvaður
Þriðjudagur, 1. apríl 2008 klukkan 20:09

Gabbið

Jájá, þetta var gabb. Mér fannst það fyndið.

Þriðjudagur, 1. apríl 2008 klukkan 13:11

Gabb eða hlaup

Hefðir eru alltaf eins og skulu ekki breytast. Svo finnst mörgum. En siðir, hefðir og venjur breytast nú bara alltaf, jafnvel þó fólk átti sig ekki á því.

Mörgum finnst ekki alvöru gabb fyrsta apríl nema að menn hlaupi apríl. Ég tel að það sé löngu komin hefð á að menn noti tækifærið og plati náungann án þess að það kosti hinn plataða einhver lengri eða styttri ferðalög. Vandamálið er samt að það verður oft svolítið óljóst hvort gabbið tókst eða ekki. Er platið gilt ef hinn gabbaði er blekktur í sekúndu eða ef hann gerir sig sekan um að tjá sig um að trúi þessu eða hvað?

Hlauplaust aprílgabb er semsagt að mínu mati alveg gilt en það er ekki jafn öflugt.

Þriðjudagur, 1. apríl 2008 klukkan 10:46

Aprílgabb: Dreg mig í hlé

Þessi klofningur fer frekar illa í mig. Eins og þeir vita sem hafa fylgst með innan frá þá hef ég reynt að vera milligöngumaður í þessum erjum og hef reynt að sætta fólk. Það hefur því miður ekki gengið.

Ef ekkert breytist þá held ég að ég noti tækifærið og dragi mig einfaldlega í hlé og hætti að hafa afskipti af þessum málum. Ég veit ekkert hvað gerist í framtíðinni en þetta er staðan í dag.