Skip to content

Gabb eða hlaup

Hefðir eru alltaf eins og skulu ekki breytast. Svo finnst mörgum. En siðir, hefðir og venjur breytast nú bara alltaf, jafnvel þó fólk átti sig ekki á því.

Mörgum finnst ekki alvöru gabb fyrsta apríl nema að menn hlaupi apríl. Ég tel að það sé löngu komin hefð á að menn noti tækifærið og plati náungann án þess að það kosti hinn plataða einhver lengri eða styttri ferðalög. Vandamálið er samt að það verður oft svolítið óljóst hvort gabbið tókst eða ekki. Er platið gilt ef hinn gabbaði er blekktur í sekúndu eða ef hann gerir sig sekan um að tjá sig um að trúi þessu eða hvað?

Hlauplaust aprílgabb er semsagt að mínu mati alveg gilt en það er ekki jafn öflugt.

3 Comments

  1. Eydís

    Ég er greinilega ekki búin að segja þér frá einu uppáhalds aprílgabbi mínu… gabbið sjálft stóð yfir í aðeins örfáar sekúndur, en fórnarlambið hefur ENN ekki beðið þess bætur að eigin sögn, þótt nokkur ár séu liðin. Gerist varla öflugra en það. Minntu mig á að segja þér frá djöfulleik mínum næst þegar við hittumst á förnum vegi.

    Annars fermdist systir mín 1. apríl og flúði svo í Ásatrúarfélagið á unglingsaldri.. meira gabbið það ;)

    Posted on 02-apríl-08 at 11:37 | Permalink
  2. Við sjáumst á morgun. Verður dinner? Á ég að taka upp?

    Posted on 02-apríl-08 at 11:40 | Permalink
  3. Eydís

    Ha? Vá, er fimmtudagur á morgun? Djö, hvert fer allur þessi tími?

    Ja, ef þú nennir að taka upp þá er það alltaf fjör.

    Posted on 02-apríl-08 at 15:14 | Permalink

Post a Comment

Your email is never published nor shared. Required fields are marked *
*
*