Gneistinn

Dagbók og handahófskennt þvaður
Mánudagur, 7. apríl 2008 klukkan 16:44

Morgunblaðið sko

Hvernig gerirðu sjálfsstæðismann óupplýstan?
-tekur af honum Moggann

Hvernig gerirðu sjálfsstæðismann illa upplýstan?
-skilar honum Mogganum

Mánudagur, 7. apríl 2008 klukkan 14:19

Ummæli sem segja allt…

Ég ætla að biðja þennan mann að drepa engan í dag. Ég tel að þessi ummæli mín segi allt sem segja þarf um þennan mann.

Mánudagur, 7. apríl 2008 klukkan 12:37

Pizza með sveppum og piparosti

Í gær var hittingur bókasafns- og upplýsingafræðinörda heima hjá Halla. Spiluðum Dilbert spilið og borðuðum pizzur.

Við Eygló sáum um að panta og ná í pizzurnar. Eftir að hafa skoðað tilboð hér og þar í veikri von um að finna sambærilegt verð við Dominos sáum við að Pizzahöllinn var með 40% afslátt af sóttum pizzum. Við pöntuðum þrjár pizzur og hvítlauksbrauð með góðum fyrirvara. Á leiðinni út á bílaplan sáum við mann koma út úr öðrum stigagangi með pizzukassa. Við sáum hann aftur niðrí Mjódd þegar hann kom inn í Pizzahöllina. Hann var að skila pizzu með röngum áleggjum. Á staðnum var líka frekar pirrað par að bíða eftir pizzum sem hafði greinilega verið klúðrað. Starfsmönnum til varnar þá var tölvukerfið þeirra í rugli.

Það fyrsta sem við gerðum þegar við fengum pizzurnar í hendur var að kíkja hvort allt væri rétt. Ein var svolítið undarleg. Hún var bara með sveppum og piparost. Mjög spes blanda. Við fengum nýja pizzu og fengum að hirða þá undarlegu sem var víst alveg ágæt. Pizzurnar voru líka bara nokkuð góðar og við munum væntanlega snúa okkur þarna niðureftir í framtíðinni.

Mánudagur, 7. apríl 2008 klukkan 9:13

Almenningssamgöngur

Ef við reiknum inn kostnað við gatnakerfið í Reykjavík, bensínkostnað (og hækkandi verð til framtíðar), bílatryggingar, bílakaup og bílaviðhald þá grunar mig að við yrðum fljót að komast að þeirri niðurstöðu að neðanjarðarlestir séu málið, sérstaklega ef við prufum að horfa til hundrað ára. Fyrstu 10-30 árin allavega þyrfti náttúrulega að skipuleggja þetta þannig að Strætó væri mikilvæg stoð fyrir lestarkerfið.

En að sjálfssögðu er ekki vilji hjá borgaryfirvöldum að horfa langt fram í tímann. Þegar Framsókn og Sjálfsstæðisflokkur myrtu nýja strætókerfið þá var það af því að til skamms tíma var það ekki að skila “hagnaði” en ekki var hugsað til þess að uppbygging almenningssamgangna væri fjárfesting til framtíðar. Það er líka ekki öllum þeim sem styrkja þessa flokka í hag að gott strætókerfi sé til staðar. Það er ekki olíufélögunum í hag, það er ekki tryggingafélögunum í hag, það er ekki bílasölum í hag. Það er hægt að bæta mörgum aðilum á þennan lista. Það er aðallega almenningur sem græðir á góðu strætókerfi en hann skiptir engu máli.

Það væri gott ef við gætum farið tíu ár aftur í tímann og fengið að vita að bensínverð myndi tvöfaldast á áratug og leyft fólki að taka upplýsta ákvörðun um hvernig uppbyggingu almenningssamgagna yrði háttað. Værum við kannski komin með neðanjarðarlest úr Mossfellsbæ yfir í Seltjarnarnes og aðra línu frá Hafnarfirði í miðborgina? Væri verið að vinna að tengja Breiðholtið við þessar línur?

Þetta eru bara smá draumórar sem maður leyfir sér og það sem skiptir máli í dag er að spyrja hvar við verðum og hvar við viljum vera eftir tíu ár, tuttugu ár og fimmtíu ár.