Ég var að horfa á The King of Kong - A Fistfull of Quarters. Hún fjallar um keppni tveggja Donkey Kong spilara um að ná heimsmetinu í leiknum. Myndin er nokkuð skemmtileg. Hún er samt víst klippt á vafasaman hátt til að gera hana dramatískari.
Sjálfur hef ég aldrei verið aðdáandi Donkey Kong og ég skil það eiginlega betur eftir að hafa horft á myndina. Þetta er aðeins of brútal leikur.
Niður með Facebookið -
sjá: http://www.albumoftheday.com/facebook/
p.s. útskrif í október! góður! Ég skráði mig á febrúar og er farin að biðja bænir.