Ég fór með Svenna og Eygló á Forgetting Sarah Marshall. Ég hló eins og hálfviti. Það voru hins vegar ekki allir jafn hrifnir, til dæmis náunginn sem fékk símhringingu, svaraði og spjallaði þar til að ég barði í sætið hans. Hann virtist hissa á pirring mínum.
Ég fékk hins vegar sjokk þegar við fórum og keyptum nammi. Fékk hálfgert deja vu. Minnti mig semsagt á atvik í neðanjarðarlestinni á leið heim á hótelið efti Q+PR tónleikana fyrir þremur árum. Hélt að ég myndi ekki sjá svona á Íslandi. Djöfull er ég reiður að við séum að verða svona samfélag. En við hverju er að búast þegar aðdáendur Thatcher og Reagan hafa fengið að stjórna svona lengi.
Hvað sástu sem þér blöskraði svo rosalega?
já ég er líka forvitin. Hvað sástu?
Dittó.