Lögreglumaður segir að veggjakrot sé eignaspjöll en ekki list. Maður hlýtur að spyrja hvort að eitt þurfi að útiloka annað?
GSM myndir
RSS listi
Facebook tenging
LoginSkráðu þig inn
Lögreglumaður segir að veggjakrot sé eignaspjöll en ekki list. Maður hlýtur að spyrja hvort að eitt þurfi að útiloka annað?
7 Comments
Nei, maður þarf aldrei að spyrja hvort eitt útiloki annað. Aldrei!
Tökum sem gefið að til sé sniðmengi.
(og það er það, þótt hlutfallslega sé það ekki stórt: til eru eignaspjöll sem líka eru list)
Þá má lesa orð þessa hjartavarðar lýðveldisins sem svo að hann sé að tilgreina nákvæmlega hvaða augum hann líti veggjakrot með tilliti til þessara tveggja flokka.
Sem undirrituðum þykir kannski fullmikil alhæfing. Sennilega er til veggjakrot af hvaða tagi neðangreindu sem er:
1) Listræn eignaspjöll
2) List en ekki eignaspjöll
3) Eignaspjöll en ekki list
4) Hvorki list né eignaspjöll
(ég er einna síst viss með fjórða möguleikann…)
Megnið af tagginu sem tröllríður borginni þykir mér falla undir þriðja liðinn hér að ofan. Vera má að eitthvað af því sé hægt að setja í fyrsta flokkinn, en þaraf grunar mig að í stærstum hluta tilvika sé listamaðurinn þá sá þriðji aðili sem bendir á gjörninginn, en ekki upphaflega krotviðrinið sjálft.
Þá má deila um hvort þetta er list. En þetta er óumdeilanlega ómetanlegur menningararfur.
List kemur málinu voðalega lítið við. Ef einhver úðar á vegg sem annar á er það brot, hvort sem hægt er að líta á það sem list eða ekki. Og listrænt gildi veggjakrots í Reykjavík á okkar tímum er nú ekki það mikið að það eigi að hafa teljandi vægi í umræðunni.
Ég held að í fáum tilvikum hafi fólk listrænan metnað í huga þegar það spreyjar á veggi.
Það er alveg til flott veggjakrot en það er mjög lítill hluti af veggjakroti sem mér finnst vera flott.
Eins og flott málverk tel ég flott veggjakrot þurfa að hafa einhverja pælingu á bak við sig eða einhverja sögu
Ég er ekki viss um að listrænn metnaður sé eitthvað sem þurfi til að skapa list.
Ég hef stundum skilgreint list þannig að það sé eitthvað sem ég geti ekki gert.
En það er margt sem ég get ekki gert – ég get t.d. ekki búið til kjarnorkusprengju, svo bara eitt dæmi sé nefnt – en kjarnorkusprengja telst seint vera list!
Þannig að þó að lögreglumaður segi að veggjakrot sé eignaspjöll en ekki list þá útilokar það ekki einhver eignaspjöll geti verði list.
Þannig gæti t.d. skilgreining mín og lögreglumannsins átt saman – veggjamálverk þar sem málaðar eru myndir sem hafa einhverju þýðingu í almennum huga landans er vissulega eignaspjöll en ég gæti ekki málað slíkt – þar með er þetta list.
Krot á einhverjum táknum er hins vegar eitthvað sem ég gæti auðveldlega gert – og getur því ekki talist list – en er klárrlega eignarspjöll.
Post a Comment