Um daginn þegar ég sá einhverja umritun Stebba Fr. á Moggafréttunum þá datt mér skyndilega í hug hvort að þetta blogg hans sé hugsanlega gríðarlega vel úthugsaður gjörningur sem á að afhjúpa innihaldsleysi og metnaðarleysi fréttaflutnings á Íslandi. Ef svo er þá klappa ég, bravó.
Ég hef heyrt að Stebbi Fr. stefni á að gefa valdar færslur út á bók fyrir næstu jól… sem einhverskonar fréttaannála fyrir árið… en ég sel það ekki dýrara en ég keypti það.
Bókin heitir:
Það er…
Ég hef oft pælt í svona löngum gjörningum, hvort að nokkrar manneskjur sem maður kannast við eigi eftir að segja á elliheimilini: “Nei! Bara djók allir! Ég var bara alltaf að djóka! Síðustu 50 ár voru einn stór gjörningur!”
Og við segjum bara: “Já, hahha einmitt. En fyndið. Sei sei. Gott er blessað veðrið, hvað er klukkan annars?”.