Í Sjónvarpinu er þáttur þar sem goðsögnin um Aþenu á að vera hrakin. Hingað til hefur komið fram að konur hefðu lítið frelsi og þar hafi verið þrælar. En hvað þetta eru stórkostlegar uppgötvanir. Eða ekki. Minnir að þetta hafi komið fram í grunnskólasögubókinni Samferða um söguna. Er ekki nóg að gera heimildarmynd um Aþenu án þess að það eigi að vera allt voðalega byltingarkennt?
Sem betur fer missti ég af kynningunni og öllum auglýsingum fyrir þennan þátt. Skipti hins vegar af rælni yfir á RÚV þegar þátturinn var byrjaður og horfði á hann. Mér fannst þetta fínn þáttur og efnið ekki sett fram eins og þar væri um nýjan sannleik að ræða, nema náttúrulega fyrir þá sem hafa aldrei lært neitt um Aþenu í sögu í grunnskóla í gamla daga. Það er hins vegar oft reynt að skapa svona “hype” til að fá fólk til að horfa á þætti sem það annars hefði látið fram hjá sér fara. E.t.v. margir sem ekkert vissu um Aþenu sem halda að þetta hafi verið voðalega byltingarkennt.