Er einhver búinn að skoða hvað myndi gerast ef hugmyndin sem Egill Helgason minntist á fyrir nokkrum árum um að opna lækinn til að koma á gegnumflæði í tjörninni yrði reynd? Ég tek fram að ég veit ekkert um þessi mál en mér fannst þetta alltaf skemmtileg hugmynd.
Ég læt mig alltaf dreyma um hvað ef hægt væri að gera Tjörnina að sjávarlóni eins og í gamladaga. En það myndi eflaust kalla á of róttækar pípulagningar.
Hvað með gömlu góðu hugmyndina um að setja í hana stífelsi og flytja hana upp í Árbæ?
Það mætti læða þessu að Björgólfi, mjög verðmæt landareign og nógu stór til að byggja þar heilan Hippaháskóla.
Eftir því sem ég kemst næst þá er lækurinn þarna ennþá, nema bara neðanjarðar.