Gneistinn

Dagbók og handahófskennt þvaður
Sunnudagur, 31. ágúst 2008 klukkan 19:18

Tívolí og afmælisbarnið

Ég hefði giskað að loforðið snerist um Tívolí. Systir mín, afmælisbarn dagsins, var einmitt þar fyrir skemmstu. Hún bloggaði einmitt um ferð sína þangað og afmælið sitt fyrr í dag. Til hamingju Hafdís.

Laugardagur, 30. ágúst 2008 klukkan 15:32

Synd að brenna bækur nema…

Einu sinni útskýrði mætur maður fyrir mér að það væri synd að brenna bækur en bætti síðan við “nema ef þær eru eftir Gunnar Dal”.

Laugardagur, 30. ágúst 2008 klukkan 12:33

Versta sem kemur fyrir þjóð

Í fréttatíma RÚV áðan var Þorgerður Katrín að tala um atvinnuleysi og sagði eitthvað á það leið að það væri það versta sem gæti komið fyrir þjóð. Núna er ég ekki aðdáandi atvinnuleysis, ég hef prufað það og mæli ekki með því, en ég myndi segja að náttúruhamfarir, stríð og sjúkdómar geti allt slegið atvinnuleysi út sem það versta sem komi fyrir þjóð.

Föstudagur, 29. ágúst 2008 klukkan 17:09

Ólympíudýrð og Kínafangi

Íslendingur fangaður í Kína. Maður veit ekki fyrir hvaða sakir þetta er en ef þetta er pólitískt þá vakna upp margar spurningar. Hvenær vissu ráðamenn af þessu? Reyndi ráðherra, og forseti jafnvel, að gera eitthvað í málinu á meðan á Kínadvölinni stóð? Var þetta þaggað niður á meðan stjórnmálamenn böðuðu sig í Ólympíudýrðinni?

Föstudagur, 29. ágúst 2008 klukkan 8:39

Djöfulsins sleikjugangur og helgislepja

Voðalega er ég orðinn leiður á að lesa um mikilmennið Obama. Það að maðurinn sé það skásta sem er í boði í Bandaríkjunum segir meira um stjórnmál þar í landi heldur en hann. Ég held að það Framsóknarmenn sem vilja ættleiða hann í sinn flokk hafi bara rétt fyrir sér, hann á örugglega best heim þar. Ég vona virkilega að hann nái kosningu og ég vona ennfremur að hann standi sig betur en ég býst við.

Breski rithöfundurinn Neil Gaiman lýsti eitt sinn bandarískum stjórnmálum ákaflega vel á bloggsíðu sinni:

Of course, when stood next to the choice of American political parties (’So, would you like Right Wing, or Supersized Right Wing with Extra Fries?”) my English fuzzy middle-of-the-roadness probably translates easily as bomb-throwing Trotskyist, but when I get to chat to proper lefties like Ken McCloud or China Mieville I feel myself retreating rapidly back into the woffly Guardian-reading why-can’t-people-just-be-nice-to-each-otherhood of the politically out of his depth.

Kannski er það bara þannig að MacCarthyisminn hafi einfaldlega virkað í Bandaríkjunum. Vinstrið var drepið, ekki bara kommúnisminn heldur nær allt vinstramegin við miðju. Það hafa komið smá endurvakningar en aldrei neitt sem máli skipti.

Ég er líka að verða gráhærður af því að hlusta á fréttaflutning af kosningabaráttunni úti. Þetta er ekki áhugavert. Þetta segir okkur ekki neitt. Hverjum er ekki sama þó Bill Clinton sé ekki enn búinn að taka Obama í sátt? Er það ekki almennt þannig að makar þeirra sem er ráðist á eru seinni til að fyrirgefa en þeir sem urðu fyrir “árás”? Borrring.

Fimmtudagur, 28. ágúst 2008 klukkan 21:35

Jónas reddar milljón?

Ég var að lesa einhvurs staðar og Björgólfur Thor hafi verið að splæsa milljón í landsliðið. Ætli þetta sé í einhverjum tengslum við gagnýni Jónasar á kallinn? Að hann sé að réttlæta sig? Kannski.

Fimmtudagur, 28. ágúst 2008 klukkan 21:22

Hamingjudagur! Gleði, gleði, gleði!

Í dag er mikill gleði og fagnaðardagur. Mikið tilefni til hamingjuóska. Afmælisbörnin eru nefnilega tvö og þær eru nöfnur. Systir mín Anna Steina er aftur orðin tíu árum eldri en ég eins og venjulega. Steinunn tengdamamma á líka afmæli og er nokkrum árum eldri en Anna.

Til hamingju með þetta

Fimmtudagur, 28. ágúst 2008 klukkan 8:39

Fyrir hvern?

Kannski er búið að blogga nógu mikið um þetta en ég verð að hvetja fólk til að hugsa um það fyrir hvern þessi sýning var í gær. Var hún fyrir handboltalandsliðið? Var hún fyrir þá sem vildu fagna handboltalandsliðinu? Eða var hún fyrir stjórnmálamennina sem vildu græða eitthvað sjálfur á árangri handboltalandsliðsins? Ég held að svarið sé augljóst.

Ef stjórnmálamennirnir hefðu viljað hylla landsliðið þá hefðu þeir getað staðið í mannfjöldanum. Í staðinn var öllum ráðherrum sem náðist í smalað upp á svið í von um að það mynduðust í höfði áhorfenda tengsl milli stjórnmálamannanna og árangurs landsliðsins. Það er allavega ekki von til þess að þessi ráðherrahópur fái klapp fyrir árangur sinn við stjórn landsins.

Guðlaugur Þór stóð sérstaklega út úr hópnum sem maðurinn sem er ekki að semja við ljósmæður og neitar að vísa fram kvittun fyrir laxveiðiferð. Nærvera hans vakti óneitanlega upp hugrenningatengsl milli kjarabaráttu ljósmæðra og kostnaðinn við fagnaðarlætin öllsömul. Samdrátturinn hefur áhrif á loforð um að bæta launakjör kvennastétta en ekki þetta.

Það er vonandi að fólk sé of klárt til að falla fyrir sýndarmennskunni og líka að það átti sig á að gagnrýni á sýninguna sé ekki ætluð landsliðinu sem var dregið inn í þetta allt saman.

Miðvikudagur, 27. ágúst 2008 klukkan 19:21

Greyjin

Ég vorkenni grey landsliðsmönnunum að þurfa að sitja undir þessum hallærisheitum öllum saman. Ég átti mjög bágt með mig á meðan þetta stóð yfir.

Miðvikudagur, 27. ágúst 2008 klukkan 14:11

Handboltalandsliðið

Jájá, gott fyrir þá en öll þess fagnaðarlæti eru orðin full ógeðfelld.

Eldri færslur »