Vandamál Strætó er það að stjórnendur fyrirtækisins virðast ekkert vita hvernig eigi að lokka að farþega. Í hvert sinn sem þeir hræra í leiðakerfinu missa þeir farþega á sama tíma og stöðugt kerfi myndi hægt og rólega vinna fleiri farþega. En ég segi að þeir virðist ekki vita þetta. Það gæti vel verið að þeir viti þetta en séu bara að reyna að jarða fyrirtækið.
Leave a comment ?

Svo ættu þeir að leyfa fólki að fara með kaffi í strætó (í svona ferðamáli). Mér var ekki hleypt inn í strætó um daginn vegna þess að ég var með kaffi svo ég þurfti að bíða eftir næsta vagni. Frekar fúlt.
Mig minnir að það hefur tilkynnt að það mætti fyrir svona tveimur árum eða svo…