Viðtal við stjórn Strætó

Hér er uppástunga á viðtali við stjórnarmeðlimi Strætó.

Sp: Notar þú Strætó?
Stjórnarlimur: Nei.
Sp: Hvers vegna ekki?
Stj: Af því að ferðatíðnin og leiðakerfið henta mér ekki (ég geri ráð fyrir að þeir hafi efni á miðum).
Sp: Af hverju ekki þá auka ferðatíðnina og bæta við leiðum?

Annars legg ég til að enginn fái að sitja í stjórn Strætó nema að sá hinn sami noti Strætó allavega fjórum sinnum í viku. Það er fráleitt að þetta fólk þekki ekki þjónustuna sem það er að stjórnast í.

  1. Ég get alveg ímyndað mér svarið. Svarið er: „Það eru ekki til neinir peningar.“

    Ég held að vandamálið sé ekki að fólkið sem stjórni Strætó sé vanhæft, miklu frekar að það sé bara ekki vilji til að gera þetta almennilega. Það kostar peninga.

  2. Ég held að þetta tvennt fari ágætlega saman.

  3. Já, já. Annað útilokar ekki hitt, eins og prestarnir segja.
    En hvernig eiga stjórnendur að geta aukið ferðatíðni, gefið frítt eða bætt við leiðum, ef enginn er tilbúinn að borga fyrir það?

  4. Mér hefur sýnst stjórnendur Strætó aðallega verið í því hlutverki að tala félagið niður.

    Ef þeir væru hæfir, og vildu hag Strætó sem mestan sem ég er ekki viss um, þá myndu þeir búa til plan með aukinni þjónustu sem myndi stefna að auknum fjölda farþega með tímabundnu tapi sem myndi síðan borga sig til lengri tíma. Þeir hætta hins vegar alltaf öllu áður en það hefur tíma til að borga sig.

    En stjórnin er samsett af þeim sem eru í meirihluta í þeim sveitarfélögum sem standa að Strætó. Þeir ættu nú að hafa næg áhrif.

Leave a Comment

NOTE - You can use these HTML tags and attributes:
<a href="" title=""> <abbr title=""> <acronym title=""> <b> <blockquote cite=""> <cite> <code> <del datetime=""> <em> <i> <q cite=""> <strike> <strong>