Það er svolítið skrýtið að Gísli Marteinn, sem hefur reynt að byggja upp ímynd sína sem grænn borgarfulltrúi, skuli ætla að fljúga á milli landa tvisvar í mánuði til að fara á fundi. Kannski að hann telji sig eiga þetta inni fyrir að hjóla. En hefur einhver séð hann í Strætó?
Ég hef reyndar aldrei séð hann á hjóli heldur, þótt ég sé síhjólandi bæði í grennd við heimili hans og vinnustað.
Ætli borgarfulltrúinn kolefnisjafni sig ekki?
Ég hef oft séð hann á hjóli.
Hann hefur oft ætlað að taka strætó en þar sem strætó gefur ekki til baka þá hefur hann ekki enn gert það.