Gneistinn

Dagbók og handahófskennt þvaður
Þriðjudagur, 30. september 2008 klukkan 16:10

Myndskilaboð - Andlegt sjálfstæði

Image001.jpg

Þetta er tölvupóstur, sendur með Myndskilaboðum frá 3546916938, titill skilaboðanna er: .
Það er ekki hægt að svara tölvupóstinum.

Þriðjudagur, 30. september 2008 klukkan 13:23

Andlegt sjálfstæði til sölu

Út er komin bókin Andlegt sjálfstæði. Ritstjórinn er ég.

Í stuttu máli er bókin samansafn þýðinga á verkum bandaríska mælskumannsins Robert G. Ingersoll ásamt útvarpserindi sem upprunalegi þýðandi verkanna, Pjetur G. Guðmundsson, flutti ári ð1936 og hét einfaldlega Trú og trúleysi. Í bókinni er merkilega margt sem ennþá á við í dag. Texti Ingersoll er ákaflega lipur og ég nefndi um daginn hvað Eygló þótti hann fyndinn.

Erindi Pjeturs er styttra en líka beitt. Það á líka því miður en við um flest í dag, sérstaklega gagnrýni hans á samband ríkis og kirkju. Ég efast um að hann hefði trúað því að hundrað og einu ári eftir að samþykkt var ályktun um aðskilnað á Alþingi og 72 árum eftir að hann flutti erindi sitt væri þetta ástand enn við líði.

Bókin fæst í Bóksölu stúdenta og fer vonandi í aðrar bókaverslanir á næstu dögum. Þeir sem vilja frekar skipta beint við mig geta hins vegar haft samband.

Þriðjudagur, 30. september 2008 klukkan 10:34

Týr með ferna tónleika

Ég var að sjá að það sé ekki nóg með að Týr verði á föstudag á Akureyri á einhverjum Hatti, á laugardag á NASA og sunnudag í Hellinum heldur verða þeir líka á fimmtudag á Paddy’s í Keflavík.

Sjá hér.

Mánudagur, 29. september 2008 klukkan 19:10

Símanúmeraþjónusta Óla

Áðan var hringt í farsímann minn og einhver frá Hagstofunni var að spyrja um Eygló. Ég spurði hvers vegna það væri verið að hringja í minn síma til að ná í Eygló og fékk þau svör að þetta væri eina númerið sem væri skráð hjá þeim (væntanlega á heimilisfangið). Ég benti henni vinsamlegast á að fletta Eygló bara upp í símaskránni, þar væri hún skráð. Þetta gerðist á bílastæðinu hjá Elkó. Eygló keyrði heim og á leiðinni var hringt í símann hennar. Ég náði í símann og kíkti á hann, það var sama númer og áður. Ég svaraði “síminn hennar Eyglóar”. Stúlkan kynnti sig en ég benti henni á að hringja eftir svona 20 mínútur því Eygló væri að keyra. Mig grunar að hún sé ekki aðdáandi minn. Eygló þótti þetta hins vegar fyndið.

En það er ekki hlutverk mitt að vera að gefa upp símanúmer Eyglóar hægri vinstri. Ég er með farsíma fyrst og fremst til að vinir og vandamenn geti náð í mig. Ég er ekki 118 þjónusta.

Mánudagur, 29. september 2008 klukkan 10:12

Já takk! Ég vil fá fjármálaráðgjöf

Á heimasíðu Glitnis má sækja um að fá fjármálaráðgjöf. Persónulega myndi ég leita annað. Ég hef ekki mikla trú á spákonum en hugsanlega hafa þær meira vit á þessum málum en þessir bavíanar sem hafa fengið að leika lausum hala hér síðustu ár. Af hverju fær bankinn ekki strax nýja yfirstjórn?

Annars er nýjasta fréttin á forsíðu Glitnis um það að prinsessa hafi hlaupið í maraþoni sem þeir borguðu fyrir.

Er frjálshyggjan ekki dauð sem hugmyndafræði í efnahagsmálum? Getur hún nokkuð lifað þetta af? Fólk hefur spurt hvar Hannes sé og þar með meint þennan þarna Smárason (ef ég man rétt) en réttara væri að fá Hólmstein Gissurararson í viðtal og fá hans útlistanir á ástandinu. Hann var páfi þessarar hugmyndafræði hér á landi og þegar hún er að falla ætti að tala við hann.

Nú er bara að vona að þetta verði eini bankinn sem verður að bjarga.

Mánudagur, 29. september 2008 klukkan 9:28

Óþekkt morðflensa - fréttakomment sem virka

Þar sem ég fékk nýlega leiðinlega flensu kíkti ég á blogg um slæmt flensuafbrigði. Þaðan var vísað á frétt Daily Mail þar sem talað er um flensu í Ástralíu þar sem hundruð hafi látist. Nú er Daily Mail ekki besta blað í heimi svo vægt sé til orða tekið. Ég kíkti því á athugasemdirnar sem fylgdu blaðinu. Þar var fjöldinn allur af Áströlum að tjá sig um að þeir hefðu aldrei heyrt um þessa morðflensu sem átti að hafa gengið þar. Ég held að ég geti því verið rólegur.

En svona ættu fréttaathugasemdir að virka. Nú eru einstaka Moggabloggarar sem í raun og veru stunda að bæta við eða hrekja fréttir en maður tekur varla eftir þeim fyrir þeim sem annað hvort endursegja fréttirnar eða koma með heimskulegar upphrópanir. Þetta fréttabloggskerfi er ekki að virka hjá þeim af því að þeir leyfa fólki sem er fyrst og fremst að reyna að vekja athygli á sjálfu sér að nota þetta óhindrað. Hugsanlega mætti kalla þetta ritskoðun en fyrst og fremst er þetta gæðastjórnun. En Mogginn væri reyndar líklegastur til að birta bara blogg frá þeim sem hafa skoðanir sem henta honum þannig að líklega væri slíkt kerfi dauðadæmt frá upphafi.

Sunnudagur, 28. september 2008 klukkan 19:28

Love scrotum

Eitt erfiðasta vandamál fólks í nútímanum er víst að starfsfólk í bakaríum talar ekki fullkomna íslensku. Sjálfur kemst ég raunar almennt upp með að nota íslensku og benda. En hvað um það.

Þar sem ég var að slafra í mig súpunni í bakaríinu á föstudaginn kom inn maður. Hann bað afgreiðslustúlkuna, sem var af erlendu bergi brotin, um kleinur. Hún átti ekki í neinu vandamáli með það. Næst kom þó erfiðara mál. Maðurinn spurði hvort til væru ástarpungar. Stúlkan skildi þetta greinilega ekki og sagðist ekki tala góða íslensku. Ég stóðst ekki mátið og sagði við manninn “þýdduþetta bara á ensku”. Hann varð smá vandræðalegur og lét það vera. Mér þótti þetta fyndið.

Sunnudagur, 28. september 2008 klukkan 9:53

Vafasamir karakterar kljást

Ég hef ekki mikla samúð með Keflavíkurlögreglustjóranum. Hann hefur, að mínu mati, of oft stjórnað vafasömum aðgerðum. Hins vegar hef ég enga samúð með þeim sem hann er að kljást við í þessum málum, ríkislögreglustjóra og kirkjumálaráðherra. Þetta er eins og í Komásþættinum fyrir viku, það dugar ekki að reyna að finna hver á að vera góði gæjinn því hann finnst ekki.

Sunnudagur, 28. september 2008 klukkan 0:45

Heimanetsvesen

Það er endalaust vesen hérna með heimanetið okkar eftir að nýji ráterinn kom. Allt var í góðu lagi áður en núna sjá tölvurnar bara ekki hver aðra. Ég er nokkuð viss um að augljósi sökudólgurinn, Norton, sé saklaus en þá veit ég bara ekki hvað gera skal. Ég finn engar stillingar í ráternum sem ég get séð að hafi áhrif á það hvort tölvurnar sjái hvor aðra. Ég get pingað ráterinn en ekki hinar tölvurnar og ég get pingað tölvurnar úr ráternum. Tölvurnar þrjár eru með XP en síðan er líka sjónvarpsflakkarinn tengdur inn á þráðlausa netið.

Einhverjar hugmyndir?

Laugardagur, 27. september 2008 klukkan 19:35

Því miður

Ef ég heyrði landsliðskonu rétt þá sagði hún að þær væru…

“tilbúnar að deyja fyrir að sigra en því miður tókst það ekki”.

Og mér þótti það skondið.

Eldri færslur »