Mér þótti alveg stórkostlegt að kirkjunnarmenn skyldu hafa flutt inn Alister McGrath. Það er þvílík viðurkenning á áhrifum Dawkins og sýnir í raun hve hræddir þeir eru við hann. Og það að þýða bók hans þó að hún sé svar við bók sem ekki hefur komið út á íslensku undirstrikar þetta. Síðan er svo auðvelt að svara McGrath af því að hann kemur alltaf með sömu rangfærslurnar.
Ég held einmitt að einhverjir á fyrirlestri McGrath hafi verið hissa á því að ég gat komið með tilvitnun í Dawkins sem sýndi hve illa guðfræðingurinn afbakaði orð hans. Ég gat þetta náttúrulega bara af því að ég prentaði út greinina og merkti við það sem hann minntist á í fyrirlestrinum. Því miður var ég bara kominn með tvennt eða þrennt þegar fundarstjóra fannst spurningin mín of löng. En þetta var gaman samt sem áður.
Þegar fundarstjórinn stoppaði þig, þá minntirðu mig á annan áhugamann um trúmál sem er líka oft stoppaður af og er oftast með mikinn bunka af blöðum með sér ;)