Björgvin og bankarnir

Einu sinni átti Björgvin G. Sigurðsson bankamálaráðherra heimasíðu þar sem hann birti pistla, ræður og greinar. Hún hvarf af einhverjum sökum nýlega. Ég hef ákveðið að aðstoða Björgvin (með hjálp Google) og birta hér einn gamlan pistil hans (leitaði og sá að Vefþjóðviljinn hefur birt þetta áður en enginn les þá síðu hvorteðer).

Útrás og árangur bankanna
Þegar KB banki opnaði útibúið í Lúxemburg fyrir nokkrum árum óraði líklega engan fyrir því hve vel íslensku fjármálafyrirtækjunum ætti eftir að ganga við að hasla sér völl á erlendri grundu. Ævintýralega vel er kannski rétta orðið yfir það.

Kraftur, kjarkur og góð þekking íslensku útrásarmannanna skilaði skilaði meiri árangri hraðar við fjárfestingar erlendis en hægt var að sjá fyrir og víkingurinn hefur vakið athygli á alþjóðavísu. Ekki síst þegar lagt er saman við aðra útrás Íslendinga erlendis í verslun, iðnaði og þjónustu ýmisskonar.

Auðvitað skortir ekki úrtölur eða þá sem telja sig knúna til að tala útrás og fjárfestingaævintýri Íslendinga erlendis niður. Þannig eru nú hlutirnir einusinni og því er það mikilvægt nú þegar hægir tímabundið á útrásinni vegna þrenginga á erlendum mörkuðum að halda frábærum árangri þessara flagsskipa atvinnulífs okkar ríkulega til haga. Þetta eru okkar voldugustu fyrirtæki og nokkrar af helstu undirstöðum efnahagskerfis okkar til lengri tíma litið.

Í árslok 2006 má áætla að hlutdeild fjármálafyrirtækja hafi numið um 10% af landsframleiðslu og  verðmæti útflutnings þekkingar og þjónustu um 60 milljörðum. Í fyrra komu um 52% af tekjum viðskiptabankanna erlendis frá og þótt erlendar tekjur vátryggingafélaga séu enn ekki svipur hjá sjón miðað við viðskiptabankanna stefnir þróunin þar í sömu átt. Þessar staðreyndir sýna svo ekki verður um villst að útrás fjármálageirans hefur orðið afgerandi þýðingu í okkar efnahagslífi. 
Íslensku bankarnir hafa sums staðar sætt nokkurri gagnrýni undanfarið erlendis. Sérstaklega fyrir að vera ekki nógu burðugir og um of háðir skammtímafjármögnun. Um forsendur gagnrýninnar sem skapaðist vorið 2006 hefur verið fjallað um rækilega, meðal annars af Fredrik Mishkin og Tryggva Þór Herbertssyni. Niðurstaðn er sú að gagnrýnin var að verulegu leyti tilhæfulaus. Hins vegar var ljóst að bankarnir þyrftu að fjármagna sig betur og til lengri tíma og að koma þyrfti betur á framfæri upplýsingum um rekstur þeirra.

Sams konar gagnrýni skýtur upp kollinum á ný í kjölfar þeirrar lausafjárkreppu sem kennd er við undirmálslán. Hún er þó ekki einskorðuð við íslenska banka , þar sem vandinn er alþjóðlegur.

Athygli vekur þó að háværasta gagnrýnin kemur frá samkeppnisaðilum bankana á erlendum vettvangi. Löngum hafa sérfræðingar Danske bank haft horn í síðu íslensku bankanna en fyrir skemmstu bættust Finnskir bankamenn í “grátkórinn“.

Aðstoðarforstjóri Nordea í Finnlandi, Markku Pohojla, gefur til dæmis opinberlega í skyn að íslensku bankarnir munu fljótlega lenda í miklum vandræðum. Hann gengur jafnvel svo langt að gera því skóna að íslensku bankarnir verði ekki til staðar eftir nokkra mánuði.

Þessi stóru orð finnska bankamannsins byggja ekki á neinni greiningu á íslenskum bönkum. Nýleg ítarleg úttekt á stöðu þeirra og íslenska fjármálakerfisins alls, eftir þá Friðrik Má Baldursson og Richard Portes, gefur til að minnta ástæðu til að ætla að staðan sé tiltölulega góð í alþjóðlegu tilliti.

Gagnrýnin hlýtur því að skoðast í því samhengi að a.m.k. tveir íslenskri bankar, Glitnir og Kaupþing, hafa hafið sókn inná markað fyrir sparifé í Finnlandi, með svipuðum hætti og Landsbankinn hefur áður gert í Bretlandi. Þessi markaðssókn kemur sér vitanlega illa fyrir Nordea sem til þessa hefur ekki treyst sér til að bjóða jafn góð kjör og íslensku bankarnir bjóða.

Ásakanir þessar eru alvarlegar þar sem þær beinast einnig að íslenskum eftirlitsaðilum. Sérstaklega Fjármálaeftirlitinu en einnig að hluta Seðlabankanum. Ítarleg greining þessarra tveggja lykilstofnanna gefa ekkert annað til kynna en að íslenska bankakerfið sé mjög stöndugt.

Í ofanálag eru innlán Finna í íslenskum bönkum tryggð með innistæðutryggingum. Að því leyti sem finnskar reglur þaraðlútandi veita betri réttindi en íslenskar myndu finnskir bankar bæta tjón sparifjáreigenda ef svo ólíklega vildi til að einhverjir bankar kæmust í lausafjárskort.

Því er rétt að halda því til haga sem rétt er þegar reynt er að kasta rýrð á fjármálastofnanir okkar þegar kreppir að.

Til að fara yfir stöðuna og til að efla samvinnu stjórnvalda og fjármálafyrirtækja um fjárfestingar erlendis mun Viðskiptaráðneytið kalla til fundar með Samtökum fjármálafyrirtækja og Viðskiptaráði í janúar. Ætlunin er að skapa varanlegan vettvang fyrir slíkt samstarf og verður janúarfundurinn fyrsta skrefið í þá átt.