Í tilkynningu frá Innheimtumiðstöð sekta og sakarkostnaðar segir (skv. mbl):
Þess má þó geta að þriggja vikna boðunarfrestur á við um afplánun óskilorðsbundinna dóma en ekki afplánun vararefsingar, sbr. 10. gr. laga um fullnustu refsinga nr. 49/2005
Þessi lína er bara til að reyna að ringla fólk í stað þess að upplýsa. Sannleikurinn er sá að skv. 71. grein sömu laga á að senda tilkynningu vegna vararefsingar. Það þarf að spyrja þá hvers vegna þeir eru í spunamennskunni. Hreint út.
Það er líka ein spurning sem þarf að spyrja aftur og aftur og hún er hvernig það kemur til að þremur dögum eftir að hann flaggar Bónusfánanum er ákveðið að Haukur Hilmarsson eigi að fara í fangelsi. Þann 8. nóvember flaggar hann, þann 11. nóvember er þetta sett inn í kerfið. Þetta getur ekki verið tilviljun. Það hefur einhver togað í spotta og nú þarf að finna þann mann. Allar líkur er að svarið finnist meðal annars hjá Innheimtumiðstöð sekta og sakarkostnaðar þar sem þetta er gert.
Haukur á að fara í mál vegna ólöglegrar handtöku. Það kemur ekki annað til greina.

Já það er með ólíkindum að þessi tilkynning hafi verið send út með þeim texta sem þú vitnar til. Það er allt að því ævintýralega léleg lögfræði að halda því fram að boðunarfrestur eigi ekki við um þetta þar sem vararefsing er ekki nefnd í sértaklega í tilvitnaðri grein.
Jafnvel þó hin greinin tæki ekki á þessu mundi samt ekki vera hægt að álykta öðruvísi en að þeir sem hyggjast sitja af sér sektir eigi ekki lakari rétt á boðun en þeir sem dæmdir eru óskilorðsbundið fangelsi. Það væri gaman að vita í hvaða morgunkornspakka þessi bréfritari fékk lagaprófið sitt.