Ég ákvað núna áðan að sjá hvað væri að gerast hjá Röskvu og Vöku og kíkti á heimasíður þeirra. Það er í gangi deila um bílastæðagjöld. Það er hægt að giska hvar menn standa. Vaka vill greinilega eyða peningum Háskólans í bílastæði frekar en menntun á meðan Röskva vill blóðmjólka stúdenta sem koma á bílum sínum í skóla. Ég umorða skoðanirnar örlítið en ekki mikið. Þetta er ekki það sem greip mig.
Það sem greip mig er að þó að um ritdeilu sé að ræða dettur höfundur/ritstjórum ekki í hug að vísa á greinina sem verið er að svara. Þetta kom þó ekki á óvart. Þetta er vaninn. Háskólalistinn lagði mikið upp úr því að vísa á greinar sem var verið að svara á vefnum og hafði líka almenna hlekki á bæði Röskvu og Vöku. Þetta var byltingarkennt í stúdentapólitíkinni en stúdentar kunnu ekki gott að meta og sitja uppi með kerfi sem þeir eiga flestir skilið.

Já, ég verð að játa að ég skil ekki pointið í því að rukka háskólastúdenta sem koma lengra að um bílastæðagjald. Það er ekki eins og við höfum það fjárhagslega betra sem neyðumst af ýmsum ástæðum til að treysta á bíldruslur nema síður sé.
Á hinn bóginn skortir háskólann síst af öllu bílastæði og það finnast varla fíflalegri markmið í nútímasamfélagi en að vilja auka frekar við truntuplássið.
Ég sé ekki betur en að eftirfarandi tilvitnun sé fyrir hendi hjá Röskvu: (efst).
“Svar við grein Stúdentaráðsliða Vöku, Jóhanns Más Helgasonar, sem birtist í síðasta Vakandi þar sem höfundur lýsir þeirri skoðun sinni að fjármunir Háskólans eigi að fara í að fjölga bílastæðum, malbika malarstæði og koma í veg fyrir gjaldskyldu í skeifunni.”
Það er kannski ágætt að lesa áður en maður gagnrýnir!
Þú ert að tala um að vísa í grein, ég er að tala um vísun á grein í samhengi internetsins (sem kallast líka tenglar eða hlekkir). Stór munur á því. Ef vísun á grein er til staðar geta lesendur séð rökstuðning andstæðings í heild sinni en ekki bara valdar tilvitnanir sem er hentugt að nota.
Og hvaða heigulsháttur er þetta að koma ekki einu sinni fram undir nafni?
Hvað ætli maður sé annars lengi að gúggla og komast að því að bílastæðamál sé algengt ágreiningsefni í hinum ýmsustu einkaháskólum?