Ég er andsnúinn því þegar sagt er að ákveðinn fjöldi af konum og börnum hafi látist. Þetta er ákaflega gamaldags karlrembuhugsunarháttur.
Líka ljótt að drepa karla
Leave a comment ?
Ég er andsnúinn því þegar sagt er að ákveðinn fjöldi af konum og börnum hafi látist. Þetta er ákaflega gamaldags karlrembuhugsunarháttur.
Algerlega sammála. Það er eins og karlar séu bara einhverjar stríðsbrúður sem er í lagi að drepa. Af hverju er ekki bara talað um fólk?
Ég horfi nú öðruvísi á þetta. Árásaraðilar vilja yfirleitt meina að árásum þeirra sé bara beint að “hermönnum” andstæðingsins. Með því að telja upp konur og börn er verið að afsanna þá fullyrðingu. Þetta er bara fljótlegasta aðferðin til þess.
Ég átta mig alveg á þessu en þessi rök ganga bara ekki upp. “Óvopnað fólk”, “óbreyttir borgarar” og þess háttar virkar. Konur geta vel verið vopnaðar, geta barist og hafa tekið þátt í hryðjuverkum.
Með því að orða fréttir svona er verið að gefa í skyn að það sé bara allt í lagi að drepa karla og það er siðlaust.