Videoið sem ég var að reyna að taka

Hér er videoið sem ég var að reyna að taka áður en ég fékk piparúða í andlitið.  Videoið sýnir voðalega lítið en það heyrist ágætlega hve sárt þetta var.

  1. hevítis fokking fokk

  2. Þegar maður sér þessar myndir hugsar maður að það gæti vel verið að löggan hafi sérstaklega verið að miða á mig.

  3. Þessi piparúði er algjört eitur og ekkert grín!
    En aðferðir sjúkraliða er ekki sniðugar, virka ekki vel og hægt. Því miður þá virðast sjúkraliðarnir ekki vita nógu vel hvað þeir eru að gera, piparúði er olía og því þýðir lítið að ætla að beita vatni til að hreinsa þennan viðbjóð út. Eitt besta ráðið er að setja mjólk eða einhverja mjólkurvöru í augun og á húðina. Það virkar mun hraðar og betur. Í allan gærdag voru manneskjur á eigin vegum með mjólk og fleira til að leita uppi og hjálpa strax þeim sem yrðu úðaðir. Þau stóðu sig rosalega vel og vita mun betur hvað þau eru að gera, mér finnst það leitt að heyra að þú hittir ekki á þau í nótt. Vonandi hefur þú jafnað þig, baráttukveðjur!

  4. Ég vissi náttúrulega ekkert hverjir fylgdu mér burt fyrren loksins þegar ég fékk saltvatn í augun, þá vissi ég að þetta væru sjúkraliðar því hinir nota jú mjólk.

  5. Mig langar dáldið, eftir að sjá þetta, til að finna gaurinn sem sagði mér einu sinni að piparúði væri „bara sársauki“ og… tjah, meisa hann.

Leave a Comment

NOTE - You can use these HTML tags and attributes:
<a href="" title=""> <abbr title=""> <acronym title=""> <b> <blockquote cite=""> <cite> <code> <del datetime=""> <em> <i> <q cite=""> <strike> <strong>