Forgermanskir ættbálkar berjast

Ég horfði á Troy í gær. Það var ekki slæm mynd en ég hafði ekki áður áttað mig á því að þeir sem börðust í Trójustríðinu hefðu verið af einhverjum forgermönskum ættbálkum. Voru allavega ljósir á hörund og hár.

  1. Ljóst hár var víst ekki bundið við germani einvörðungu. Ljóst hár var víst ekki óalgengt í mörgum fornrómverskum og grískum fjölskyldum. Hinn bleikhári Menelaús var ekkert einsdæmi.

  2. Á grískan mælikvarða er ég næstum ljóshærður. Ég er því nokkuð viss um að þegar talað er um ljóst hár á þessum slóðum til forna þá er ekki verið að tala um eitthvað sem er líkt því ljósa hári sem til dæmis Brad Pitt skartar í myndinni.

  3. Hinir upprunalegu hellenísku þjóðflokkar hafa mjög blandast öðrum síðan þeir komu að norðan og settust að. Fólkið sem maður sér á aþenskum myndastyttum er gerólíkt nútímagrikkjum.

  4. Ég held satt best að segja að það sé enginn sérstakur munur á útliti nútíma Grikkjum og styttum af Forn-Grikkjum. Ég held líka að sögur af þjóðflutningum séu mjög ýktar og að það sé voðalega lítið af sönnunum fyrir því að slíkt hafi átt sér stað í stórum stíl.

Leave a Comment

NOTE - You can use these HTML tags and attributes:
<a href="" title=""> <abbr title=""> <acronym title=""> <b> <blockquote cite=""> <cite> <code> <del datetime=""> <em> <i> <q cite=""> <strike> <strong>