Vökuliðar réðu kærasta formanns SHÍ sem framkvæmdarstjóra. Mér finnst bara eitthvað svo klikkað láta sér detta þetta í hug. Það að sækja um þegar kærastan er formaður er bara svo út í hött. Jafnvel þó hann væri hæfastur væri þetta bilað.
En stúdentar kusu þetta lið yfir sig. Þeir hefðu kannski átt að hugsa sig betur um. Líklega gera þeir það á næsta ári.
Þið getið lesið um þetta:
Röskva gagnrýnir, Vaka “svarar”, Röskva svarar, Frétt á Stúdent.is (mikið þoli ég ekki vefsíður sem heita urlinu sínu).

Öskra fjallar líka um þetta, næstefsta greinin: http://oskra.org/
Vökuliðarnir eru í rétta gírnum, þetta eru jú arftakar íhaldsins síðar meir. Regla nr. 1 er að koma sínu fólki að í allar þær stöður sem hægt er. Þannig er hægt að hafa stjórn á hlutunum.
Að láta sér detta þetta í hug, ráða bólfélaga formannsins sem framkvæmdastjóra. Vaka ætlar sér að setja ný viðmið fyrir spillinguna og horfir þar helst til Afríku sunnan Sahara sér til fyrirmyndar.
Við skulum ekki gleyma því að RÖSKVA spilaði sama leik er sú fylking var með meirihluta. Það var bara ekki eins augljóst.
Nú eru breyttir tímar, launin sem þóttu áður ekki sæmandi eru skárri en ekkert núna og því verður feluleikurinn erfiðari. Og já… líka þegar maður ræður kærastann sinn.