Blaðsíða 145 og væntanlegur prófarkarlestur

Ég held ég sé á blaðsíðu 145, um það bil. Það er ágætt. Ég sé fram á að klára fyrsta uppkastið af heildinni á næstu tveimur vikum eða svo. Það sem tekur við er kannski erfiðara. Ég mun þá fara að endurskrifa fyrri kafla, dýpka þá og laga. Það gæti orðið erfitt en ég stefni á útskrift í júní sem þýðir að ég hef rétt rúman mánuð.

Er einhver þarna úti sem langar að prófarkarlesa cirka 160-180 blaðsíðna þjóðfræðiritgerð um Eve Online? Ég get fullyrt að hún er áhugaverð hvort sem þú spilar leikinn eða ekki. Hafið samband.

  1. Ég ætla í það minnsta að benda á að réttur ritháttur er prófarkalestur. Hnegg.

  2. Er það? Er þetta ekki bara ein próförk?

  3. Það má vera, en rithátturinn er rökrænunni oft yfirsterkari og svo er meðal annars í þessu tilviki. Grínlaust.

  4. Ég les prófarkir (gegn gjaldi!). Ef ég les aðeins fyrstu próförk er ég prófarkarlesari. Ef ég les einnig aðra og jafnvel þriðju próförk, er ég prófarkalesari.

  5. Hann er sammála þér, Óli. Gefðu honum pening.

  6. Ég er sem betur fer þannig staddur að ég á vini og fjölskyldumeðlimi sem eru tilbúnir að gera þetta fyrir mig.

  7. Ég fagna því einlæglega. Það væri samt gaman að heyra tillögur verktaka um kostnað.

  8. Ég gæti nú hugsað mér að lesa ritgerðina, þótt ég sé langt frá því að vera snillingur í próförk.

    Þá aðallega vegna þess hversu nálæg hin ritgerðin var mér og mínum vinum.

Leave a Comment

NOTE - You can use these HTML tags and attributes:
<a href="" title=""> <abbr title=""> <acronym title=""> <b> <blockquote cite=""> <cite> <code> <del datetime=""> <em> <i> <q cite=""> <strike> <strong>