Sent

Ég hef þá sent Terry ritgerðina mína. Hún er 215 blaðsíður með heimildaskránni. Það er engin ofsakæti hjá mér. Ég er aðallega bara þreyttur. Þetta er ekki alveg búið því prófdómari getur komið með athugasemdir sem ég má taka tillit til. En allavega er núna engin ritgerð yfir höfðinu á mér.

  1. Hvenær áttu að verja?

  2. Ég ver ekki neitt. Bara til dómara, athugasemdir þaðan og síðan endurskrifa ég ef eitthvað þarf. Síðan fæ ég bara einkunn.

  3. Hvaða lúxus er það? :)

  4. Til hamingju Óli. Þegar ég kláraði MSc ritgerðina mína árið 1998 þurfti ég að halda opinberan fyrirlestur sem auglýstur var í Mogganum. Að honum loknum tók við klukkutíma vörn. Það eru greinilega breyttir tímar.

  5. Ég veit ekki hvort þetta hefur tíðkast með MA gráður. Ég get hlakkað til þessa ef ég fer í doktorinn.

Leave a Comment

NOTE - You can use these HTML tags and attributes:
<a href="" title=""> <abbr title=""> <acronym title=""> <b> <blockquote cite=""> <cite> <code> <del datetime=""> <em> <i> <q cite=""> <strike> <strong>