Ég hef undanfarið verið að hneykslast yfir póstum frá Stúdentaráði þar sem stúdentar eru hvattir til að skrifa undir undirskriftarlista gegn bílastæðisgjöldum við Háskóla Íslands. Ég vil bílastæðisgjöld þar. Ég vil minnka mengun og umferð bíla.
Ég hvet því nemendur Háskóla Íslands til að skrifa undir þennan undirskriftarlista til stuðnings því að bílastæðisgjöld verði, með ákveðnum skilyrðum, tekin upp á svæði skólans.

Er ekki rangt ályktað hjá málsvara hins undirskriftalistans (þessa sem er á móti bílastæðagjöldum) að væntanlegir stöðumælar verði á vegum Reykjavíkurborgar? Þekkirðu eitthvað til þess? Þar sem ég þekki til erlendis hafa stöðumælar á háskólasvæðum verið á vegum skólans sjálfs og gjaldið að sjálfsögðu runnið til skólans.
Ég er líka stórhneyksluð á málflutningi Stúdentaráðs í þessum efnum. Ég held ég láti það eiga sig að segja hvaða hugsanir hann vekur upp hjá mér svo ég fari nú ekki að móðga einhverja af nemendum mínum.
Mér skilst að framsetningin sé allavega villandi. Þetta verður á vegum borgarinnar en Háskólinn mun fá pening þegar búið er að fá einhverja grunnfjárhæð inn. Ég er samt ekki alveg viss.