Kannabis

Ég er fyrir nokkru farinn að hallast að því að réttast væri að leyfa kannabis á Íslandi. Þetta er ekki af því ég er svona hrifinn af þessu efni enda hef ég aldrei prufað það.

Helsta rökin eru að bannið er ekkert að virka og þeir einu sem græða á banninu eru glæpamenn. Við værum betur stödd með þetta á yfirborðinu. Setjum þetta í ÁT(K?)VR og skattleggjum það.

Ég verð að hrósa landlækni fyrir að taka sér tíma til að tjá sig svona rökfast um málið. Það hefði verið ákaflega auðvelt fyrir hann að hunsa málið.

  1. Ég hef alltaf verið á báðum áttum, það er hægt að finna góð og slæm rök fyrir hvoru tveggja, þ.e. banni og lögleiðingu. Helsta gallann sé ég að Ísland verði að einhverskonar kannabis útópíú útlendinga sem munu koma hingað í tugþúsundatali til þess að fá sér smók og partíast. Eins og það er ekki orðið nógu leiðinleg hvernig Reykjavík hefur/var markaðssett sem “The party capital of the North”. Lögleiðing myndi allavega leysa ýmsa vanda okkar í fangelsismálunum :-)

  2. Gætum sett dvalarleyfi sem skilyrði fyrir kaupum. Síðan væri hægt að veita undanþágu fyrir Húsavík eða Keilissvæðið sem þannig að dóptúrisminn gæti farið þangað. Í staðinn fyrir álver sko.

  3. Í Portúgal var neysla fíkniefna (líka þeirra hörðu, ekki bara kannabis!) gefin nokkurn veginn frjáls, á meðan sala þeirra var enn þá ólögleg. Þeim fjármunum sem áður fóru í að hirða einhverja fíkla af götunni var í staðinn varið í forvarnir og fíkniefnafræðslu. Á sirka átta árum hefur ástandið í landinu stórbatnað hvað eiturlyf varðar, færri verða háðir fíkniefnum, glæpatíðni hefur minnkað o.s.frv. Samt sem áður hefur landið ekki orðið n.k. “dóp-paradís”, a.m.k. ekki nærri því í jafn miklu mæli og Holland.

    Það er óþolandi þegar fólk setur samasemmerki á milli “löglegt” og æskilegt”. Það gleymir því t.d. að áfengi og tóbak eru lögleg efni og ætti að líta sömu augum og önnur fíkniefni.

  4. Hugsið ykkur alla eymdina og volæðið sem stríðið gegn fíkniefnum er búið að kosta. Og öll mannslífin! Er ekki kominn tími til að setja þessa hluti í sitt rétta samhengi?

    Heróínfíkill = verkjalyfjasjúklingur.

    Af hverju á verkjalyfjasjúklingur að þurfa að nálgast stöffið sitt til glæpamanna og á uppsprengdu verði, þannig að hann neyðist til að ræna gamlar konur, vera vannærður og nota áhættusamar leiðir til að koma efninu inn í líkama sinn? Er ekki skynsamlegra að hann nálgist verkjalyfið sitt úti í apóteki, með lyfseðil í höndunum? Og lifi svo bara eðlilegu lífi þess utan, eins og við hin?

    Og fái svo alla þá þjónustu sem hann þarf til að losna undan fíkninni.

    Heimsbyggðin er enn á sama stað í fíkniefnamálum og Bandaríkin voru í áfengismálum í þann tíð er Al Capone réð ríkjum. Það er í raun stórkostlega heimskulegt að ráðamenn sjái ekki þetta einfalda samhengi hlutanna.

  5. Kristján, þú vonast vonandi ekki eftir að fólk líti sömu augum á áfengi og tóbak eins og heróín og crystal meth? Eða koffín?

  6. Óli: Já, það væri ekki svo vitlaust.

  7. Ég tel að einungis sala á innlendri framleiðslu ætti að vera frjáls. Hins vegar mætti líka auka þjónustu við verkjalyfjasjúklinga innan heilbrigðiskerfisins, eins og gert var í Bretlandi á sjötta áratugnum og langt fram á þann sjöunda.
    Annars er eitt sem ég skil ekki í þessari umræðu, hvers vegna eru allir að tala um “kannabis” sem er tökuorð úr grísku, þegar íslenskan hefur samstofna orð úr norrænu sem þýðir nákvæmlega það sama, eða “hampur”?

  8. Jamm, bókstaflega sama orðið. Allavega útskýrði fyrrverandi enskukennari minn það fyrir mér í MA.

Leave a Comment

NOTE - You can use these HTML tags and attributes:
<a href="" title=""> <abbr title=""> <acronym title=""> <b> <blockquote cite=""> <cite> <code> <del datetime=""> <em> <i> <q cite=""> <strike> <strong>